Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fetar í fótspor föður síns í Eyjum - „Einn besti skóli sem til er"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skoraði tvennu gegn Stjörnunni í Lengjubikarnum í fyrra.
Skoraði tvennu gegn Stjörnunni í Lengjubikarnum í fyrra.
Mynd: Mummi Lú
Róbert Elís og Óskar Hrafn.
Róbert Elís og Óskar Hrafn.
Mynd: KR
Addý Ólafsdóttir, móðir Róberts, hér hægra megin á myndinni.
Addý Ólafsdóttir, móðir Róberts, hér hægra megin á myndinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Róbert Elís Hlynsson var fyrr í vetur lánaður frá KR til ÍBV. Róbert er efnilegur og fjölhæfur leikmaður sem fæddur er 2007. Hann samdi við KR fyrir síðasta tímabil, kom frá uppeldisfélaginu ÍR. Róbert kom við sögu í sjö leikjum í Bestu deildinni og lék talsvert með 2. flokki félagsins.

Róbert er U19 landsliðsmaður, á að baki 18 leiki fyrir yngri landsliðin og tvö mörk.

Fótbolti.net ræddi við Róbert Elís um skiptin í ÍBV.

„Ég heyrði af áhuga, að þeir vildu fá mig á láni, og ég varð strax spenntur og ákvað að slá til. Óskar (Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR) ræddi við mig um þennan möguleika og við vorum báðir spenntir fyrir þessu. Hjá ÍBV er tækifæri til að fá stærri rullu innan liðs og mögulega meiri ábyrgð inn á vellinum."

„Félagið er stórt og rekið af miklum metnaði, og tilhugsunin að spila fyrir þetta ástríðufulla bæjarfélag er mjög góð. Síðan skemmir ekki fyrir að með þessum skiptum er ég að feta í fótspor pabba frá því fyrir um 40 árum held ég,"
segir Róbert.

Faðir hans er Hlynur Elísson sem lék með ÍBV á sínum tíma. Foreldrar hans voru bæði í fótbolta því móðir Róberts, Addý Ólafsdóttir, lék þá á sínum tíma með Arsenal á Englandi.

Stutt í allt sem þarf og rólegra líf
Hvernig hafa fyrstu vikurnar í Eyjum verið?

„Þær hafa verið mjög góðar, strákarnir hafa tekið mjög vel á móti mér. Umhverfið er aðeins öðruvísi en í bænum, stutt í allt sem þú þarft og mun rólegra líf en maður er vanur. Æfingaaðstaðan er náttúrulega frábær og reyni ég að nýta hana eins og ég get."

Vildu frekar slást en að spila fótbolta

„Spánverjarnir vildu frekar vera slást heldur en spila fótbolta og í lok fyrri hálfleiks sauð allt upp úr. Ákvörðun var tekin að spila ekki seinni hálfleikinn upp á heilsu leikmanna að gera og tókum við því bara góða æfingu í staðinn."

„Æfingaferðin gekk mjög vel og hópurinn náði að þjappa sér vel saman, það var æft við mjög góðar aðstæður á Pinatar, gott fyrir mig og einnig hópinn að vera saman nokkra daga og kynnast betur."


Skemmtilegur hópur og metnaður í kringum liðið
Hvernig líst þér á þjálfarann Aleksandar Linta?

„Mér líst mjög vel á hann. Hann er skýr í sínum hugmyndum og það er góður metnaður í kringum liðið. Hann og Óskar Zoega eru frábært teymi."

Þekktir þú einhvern leikmann fyrir og hefur einhver komið þér sérstaklega á óvart?

„Ég þekkti nokkra þeirra áður en ég kom, hafði spilað bæði með og á móti sumum þeirra. Í raun engin einn sem hefur komið mér á óvart, heldur meira hversu skemmtilegur hópurinn er."

Vill vera í boltanum
Hver er þín besta staða á vellinum?

„Ég hef spilað í nokkrum stöðum, en mér líður best þar sem ég fæ að vera aðeins meira í boltanum. En svo eins og oft er sagt – ég spila bara þar sem þjálfarinn vill hafa mig."

Einstakt lærdómstímabil

„Úr því sem komið var þá endaði þetta ágætlega fyrir KR, þó stefnan sé að sjálfsögðu alltaf hærra og hæst. Fyrir mig persónulega var þetta einstakt lærdómstímabil, að fá smjörþefinn af Bestu deildinni og æfa undir stjórn Óskars Hrafns, það er einn besti skóli sem til er."

Stefnan sett á sem flestar mínútur
Hver eru markmiðin á komandi tímabili?

„Mitt markmið er að fá sem flestar mínútur og halda áfram að þróa mig sem leikmaður, og hjálpa liðinu eins mikið og ég get í leiðinni. Markmið liðsins er að sýna góða frammistöðu í hverjum einasta leik og að bæta ofan á það sem liðið gerði í fyrra. Svo vonandi fylgja góð úrslit með því," segir Róbert.

Næsti leikur ÍBV er gegn Fylki á útivelli í Lengjubikarnum í kvöld. Íslandsmótið hefst svo eftir mánuð.
Athugasemdir
banner
banner