Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 17:26
Kári Snorrason
Gils Gíslason með þrjú í endurkomusigri FH
Adolf Daði og Gils ánægðir að leik loknum.
Adolf Daði og Gils ánægðir að leik loknum.
Mynd: Twitter/FHingar
FH 4-3 Young Stars
0-1
1-1 Adolf Daði Birgisson
1-1
1-2
1-3
2-3 Gils Gíslason
3-3 Gils Gíslason
4-3 Gils Gíslason

FH vann 4-3 endurkomusigur gegn Young Stars, efstudeildar liði í Suður-Súdan, í æfingaleik á Marbella fyrr í dag.

Staðan var 1-1 í hálfleik og skoraði Adolf Daði Birgisson mark Hafnfirðinga. Young Stars byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur og komust 3-1 yfir.

Gils Gíslason kom inn á sem varamaður og gerði sig heldur betur gildandi. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu og tryggði FH-ingum sigurinn.

Byrjunarlið FH:
Jökull Andrésson
Birkir Valur Jónsson
Grétar Snær Gunnarsson
Tobias Carlsson
Aron Jónsson
Tómas Orri Róbertsson
Baldur Kári Helgason
Arnór Borg Guðjohnsen
Adolf Daði Birgisson
Kjartan Kári Halldórsson
Sverrir Páll Hjaltested
Athugasemdir
banner
banner
banner