Valur var í fimmta sæti í síðustu ótímabæru spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildinna sem var opinberuð á laugardaginn síðastliðinn.
Hermann Hreiðarsson tók við stjórnartaumunum á Hlíðarendafélaginu eftir að Srdjan Tufegdzic, Túfa, var látinn taka poka sinn.
Í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn var rætt um stöðu Vals fyrir komandi tímabil. Þar kom m.a. fram að félagið hefði ekki úr sömu fjármunum að moða úr eins og síðustu ár.
Hermann Hreiðarsson tók við stjórnartaumunum á Hlíðarendafélaginu eftir að Srdjan Tufegdzic, Túfa, var látinn taka poka sinn.
Í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn var rætt um stöðu Vals fyrir komandi tímabil. Þar kom m.a. fram að félagið hefði ekki úr sömu fjármunum að moða úr eins og síðustu ár.
Nýjar áherslur
„Það er nokkuð ljóst að Valur er ekki með sama pening og þeir hafa verið að spila með undanfarin ár. En ég er samt á því að miðað við fýluna og neikvæðnina sem hafa verið í gangi í nokkur ár núna að þá held ég hinn almenni Valsmaður sé til að taka nokkur skref til baka til að taka tvö skref fram á við.
Þeir hafa verið með elsta og dýrasta lið deildarinnar en vinna aldrei mótið. Þetta gæti verið tímabil þar sem hinn almenni Valsmaður sér ungan strák sem hann þekkir á bekknum og fagnar því. Aðeins öðruvísi nálgun. Hversu lengi það heldur, ef þetta er rétt hjá mér, veit ég ekki. Gef því kannski fjórar umferðir. Síðan verður krafan um árangur komin aftur, sagði Haraldur Árni Hróðmarsson lýsandi hjá Livey og fyrrverandi þjálfari Grindavíkur.
Spilað í þriggja miðvarða kerfi
„Það kemur fyrsti leikur í móti, segjum að þeir fari í 5-3-2, sem þeir hafa verið að spila. Stillt upp með Orra Sigurð, Hólmar og Nakkim í miðverði. Frederik Shcram í markinu, Stöle í hægri vængbakverði og Birki Heimis vinstra megin. Þú ert með Kristinn Frey, Adam Ægi og Skoglund þarna. Þá vantar framherja. Miðað við hópinn sem þeir eru með verður þetta sama lið og í fyrra,“ sagði Haraldur jafnframt.
Hver stýrir liðinu?
Mikil umræða hefur skapast um hver stýri í raun Valsliðinu. Þó að Hermann Hreiðarsson sé titlaður aðalþjálfari hafa margir velt því fyrir sér hverjir séu að fara með völdin. Í útvarpsþættinum á laugardaginn spurði Elvar Geir Magnússon einfaldlega: Hver stýrir liðinu?
„Það hefur verið rætt frá upphafi, eftir að Chris Brazell og Gareth Owen komu inn í þetta, hvort að Hemmi verði meiri 'manager' og hinir sjá um allt hitt. Maður veit í rauninni ekki hvernig það mun lukkast, sagði Valur Gunnarsson og Haraldur Árni tók orðið:
„Valur spilar í rauninni alveg eins og Chris Brazell var að láta Gróttu spila fyrir tveimur árum. Það er bara flott, þú ert ekkert verri þjálfari fyrir vikið ef þú gefur aðstoðarþjálfaranum aukið vægi,“ en Chris Brazell var rekinn um mitt tímabil fyrir tveimur árum og féll Grótta úr Lengjudeildinni um haustið.
Athugasemdir



