Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 13:00
Fótbolti.net
Heimild: Þungavigtin 
Segir bæði Þórsara og Valsara bálreiða - „Þetta er mesta kjaftæði sögunnar"
Hermann Hreiðarsson tók við Val eftir að síðasta tímabili lauk.
Hermann Hreiðarsson tók við Val eftir að síðasta tímabili lauk.
Mynd: Valur
Bjarni Mark og Andi Hoti voru reynslumestu útispilarar Vals í gær.
Bjarni Mark og Andi Hoti voru reynslumestu útispilarar Vals í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikael Nikulásson.
Mikael Nikulásson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Leikur Þórs og Vals vakti athygli í gær. Valsmenn mættu með mjög óreynt lið í Bogann þar sem spilað var um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins. Lokatölur urðu 5-1 fyrir Þór og skoraði Atli Sigurjónsson öll mörk heimamanna sem fara í undanúrslitin.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í gær og sagði stöðuna á hópnum einfaldlega vera stöðuna á hópnum.

„Við höfum farið fram og til baka yfir það hvernig við höldum hópinn, þetta er í miðri viku og slítur svolítið æfingavikuna ef við hefðum tekið þessa fáu sem eru klárir. Núna er þetta að þétta raðirnar og halda sterkum kjarna á æfingunum," sagði Hemmi.

Það er því ljóst að það voru leikmenn eftir heima sem hefðu getað spilað leikinn.

Hemmi neitaði því að Boginn og möguleg meiðslahætta þar hafi haft áhrif á liðsvalið og sagði einnig að sú staðreynd að Valur og Þór mætast í fyrsta deildarleik hefði ekki heldur neitt með liðsvalið að gera. „Þetta var skipulagið hjá okkur, hvernig menn eru að týnast inn. Það hefur verið svolítið mikið um að menn séu ekki klárir, einhverjir eru í ræktinni og hér og þar. Núna styttist í mót og við ætlum að halda hópinn, gera allt saman."

„Ef þetta hefði verið eftir kannski tíu daga þá hefðum við komið með allt liðið og það hefði hentað ölum."

„Þetta er ekki vanvirðing gagnvart keppninni eða Þór, ekki nálægt því að vera þannig. Menn geta komið á æfingasvæðið og séð hvernig staðan er, og séð hvað menn hafa æft mikið. Menn mega hugsa hvað sem þeir vilja, en við vitum hvernig staðan er og hvað sé best fyrir liðið. Við erum að gera okkur klára fyrir Íslandsmót, þetta er hluti af því,"
sagði Hemmi. Viðtalið við hann má nálgast í hlekknum hér að neðan og í spilaranum neðst.

„Þórsarar eru brjálaðir, ekki bara þeir sem eru í kringum liðið, heldur líka aðdáendur, út í Valsrarana (að hafa ekki mætt með sitt sterkasta lið). Samkvæmt mínum heimildum þorði Hermann Hreiðarsson ekki að mæta með liðið sitt norður," segir Mikael Nikulásson í áskriftarþætti Þungavigtarinnar. Mikael segir að Hermann hafi vitað að hann væri að fara tapa á móti Þór.

„Þeir eru að fara spila á móti þeim í fyrsta leik í Íslandsmótinu. Samkvæmt mínum heimildum eru leikmenn Vals bálreiðir, þeir vildu spila leikinn. Þetta var úrslitaleikur um að komast í undanúrslitin í deildabikarnum."

„Það var ekki málið að þeir mættu ekki út af vellinum, þeir bara þorðu ekki í þá (Þórsarana), ætluðu ekki að sýna þeim spilin. Auðvitað trúði maður þessu ekki, en þegar maður sér viðtalið við Hermann Hreiðarsson eftir leik þá verð ég bara að segja að ég veit ekki hvað gerðist við vin minn Hermann Hreiðarsson. Þetta viðtal fer í topp þrjú yfir ótrúlegustu viðtöl sem ég hef nokkurn tímann séð á ævinni. Bullið, lygin og ruglið sem kemur upp úr honum fyrstu sex mínúturnar af viðtalinu. Allir menn sem eru á lífi sjá að Hemmi veit ekki hvað hann er að segja."

„Hann segir svona sjö sinnum í viðtalinu að hópurinn sé svo sterkur og strákarnir þurfi að vera saman. Ég skildi ekki orð af því sem hann var að segja og hann hefur ekki skilið það sjálfur."

„Þetta Vals fíaskó í gær, og svörin frá honum með þetta. Ég hvet alla til að hlusta á þetta viðtal, þetta er mesta kjaftæði sögunnar. Þeir bara steinlágu og eiga engan alvöru leik eftir fram að móti. Hann sagði að það væri best að þeir væru saman á Hlíðarenda, þetta er bara mega þvæla. Hann veit að hann er að ljúga og bulla allan tímann,"
sagði Mikael.

„Ég þekki mjög háttsetta Valsmenn sem klóra sér bara í hausnum, hvar endar þetta kjaftæði?" sagði Rikki G sem er stuðningsmaður Vals.

Viðtal við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, má einnig nálgast hér að neðan.
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Athugasemdir
banner