Arsenal rétt bjargaði jafntefli í fyrri leik liðsins gegn Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Robert Andrich fyrirliði Leverkusen skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og tókst gestunum frá London ekki að skapa mikla ógn í leit sinni að jöfnunarmarki.
Noni Madueke kom inn af bekknum fyrir Bukayo Saka og átti eftir að gera gæfumuninn með leikni sinni úti á hægri kantinum. Hann fór framhjá tveimur leikmönnum Leverkusen og fiskaði umdeilda vítaspyrnu, sem Kai Havertz skoraði jöfnunarmarkið úr á 89. mínútu. Lokatölur 1-1.
Leikmenn Leverkusen kvörtuðu sáran undan vítaspyrnudóminum en VAR-teymið ákvað ekki að skerast í leikinn þar sem um augljósa snertingu var að ræða.
11.03.2026 19:44
Meistaradeildin: Havertz bjargaði jafntefli gegn uppeldisfélaginu
[Alternate Angle] Foul on Madueke for Arsenal's Penalty
by
u/OkayFine101 in
soccer
Athugasemdir




