Það komu nokkrar íslenskar fótboltakonur við sögu í leikjum dagsins í Evrópu þar sem hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir skoraði í þægilegum sigri Häcken gegn Linköping.
Liðin mættust í sænska bikarnum og varði Fanney Inga Birkisdóttir mark heimakvenna í liði Häcken.
Fanney hélt hreinu og urðu lokatölur 3-0 þar sem Thelma Karen skoraði síðasta mark leiksins til að innsigla sigurinn.
Häcken er með sex stig eftir tvær umferðir og mætir AIK í úrslitaleik um toppsæti riðilsins.
Íslendingalið Fiorentina tók þá á móti stórveldi Juventus í undanúrslitum ítalska bikarsins. Iris Ómarsdóttir var í byrjunarliði Fiorentina og spilaði hún fyrstu klukkustund leiksins, áður en henni var skipt útaf fyrir Hlín Eiríksdóttur. Katla Tryggvadóttir var ekki með.
Lokatölur urðu 0-2 fyrir Juventus sem er í frábærri stöðu fyrir seinni leik liðanna í undanúrslitunum.
Að lokum var Glódís Perla Viggósdóttir ónotaður varamaður í þægilegum sigri FC Bayern í 8-liða úrslitum þýska bikarsins.
Bayern, sem er langbesta liðið í Þýskalandi í dag bæði í karla- og kvennaflokki, vann auðveldlega gegn Hamburger SV og tryggði sér sæti í undanúrslitum.
Hacken 3 - 0 Linkoping
1-0 Felicia Schröder ('17)
2-0 Tabby Tindell ('38)
3-0 Thelma Karen Pálmadóttir ('63)
Fiorentina 0 - 2 Juventus
0-1 Chiara Beccari ('9)
0-2 Ana Capeta ('51)
Hamburger SV 0 - 3 FC Bayern
0-1 Edna Imade ('7)
0-2 Franziska Kett ('66)
0-3 Natalia Padilla ('88)
Athugasemdir

