Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 09:45
Elvar Geir Magnússon
Arsenal vill Brandt - Man Utd meðal félaga sem hafa áhuga á Manzambi
Powerade
Julian Brandt.
Julian Brandt.
Mynd: EPA
Johan Manzambi (til hægri).
Johan Manzambi (til hægri).
Mynd: EPA
Arsenal horfir til Þýskalands, ungur svissneskur miðjumaður er orðaður við ensk stórlið og framtíð Tonali er í umræðunni. Hér er slúðurpakki dagsins.

Arsenal vill fá þýska miðjumanninn Julian Brandt (29) þegar samningur hans við Borussia Dortmund rennur út í sumar. (Metro)

Manchester United, Arsenal og Chelsea hafa öll áhuga á svissneska miðjumanninum Johan Manzambi (20) hjá Freiburg. (Teamtalk)

Arsenal hefur hinsvegar ekki lengur áhuga á að kaupa ítalska miðumanninn Sandro Tonali (25) frá Newcastle. (Chronicle)

Ólíklegt er að Tonali snúi aftur til Ítalíu eftir að Newcastle setti 77 milljóna punda verðmiða á leikmanninn. Juventus er ekki tilbúið að borga þá upphæð en Manchester United og Manchester City hafa enn áhuga. (Matteo Moretto)

Juventus hefur hafið viðræður við portúgalska miðjumanninn Bernardo Silva (31) en samningur hans við Manchester City rennyr út í sumar. Juve fær samkeppni frá Galatasaray, Inter Miami og fleiri félögum. (Gazzetta dello Sport)

Brighton telur sig vera að vinna samkeppni við Chelsea um þýska vængmanninn Said el Mala (19) sem hefur vakið mikla athygli með Köln. (Football Insider)

Chelsea vill ekki selja Liam Delap (23) í sumar þrátt fyrir að Englendingurinn, sem hefur átt meiðslahrjátt tímabil, hafi aðeins skorað eitt úrvalsdeildarmark fyrir félagið. (Mirror)

Liverpool er áfram á markaðnum fyrir varnarmann í sumar og þýski landsliðsmaðurinn Nnamdi Collins (22) hjá Eintracht Frankfurt er skotmark. Arsenal fylgist einnig með leikmanninum. (Mirror)

Barcelona er farið að skoða varakostir ef félagið nær ekki samkomulagi um að kaupa Marcus Rashford (28) sem er á láni frá Manchester United. (Marca)

Crystal Palace leiðir baráttuna um vængmanninn Femi Azeez (24) hjá Millwall en Everton, Brentford og fleiri úrvalsdeildarfélög hafa fylgst með honum. (Teamtalk)

Tottenham, Crystal Palace og Manchester United hafa öll áhuga á Andoni Iraola (43), stjóra Bournemouth. Samningur hans rennur út eftir tímabilið. (i paper)
Athugasemdir
banner
banner