Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: 18 ára óvænt í byrjunarliði Real Madrid
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru þrír leikir á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld og þar á meðal eru tveir risaslagir.

Sigursælasta félag í sögu keppninnar, Real Madrid, tekur á móti Manchester City enn eina ferðina en þessi stórveldi eru að mætast í sjötta sinn á sjö árum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

Stórstjarnan Kylian Mbappé er ekki með Madrídingum á heimavelli vegna meiðsla en Vinícius Júnior er á sínum stað. Hinn 18 ára gamli miðjumaður Thiago Pitarch fær óvænt tækifæri í byrjunarliðinu á meðan Franco Mastantuono situr á bekknum ásamt Gonzalo García, Eduardo Camavinga og Raúl Asencio.

Þá er Trent Alexander-Arnold í byrjunarliðinu með fyrirliðann Dani Carvajal, sem hefur verið að glíma við meiðsli, á bekknum. Ferland Mendy fær einnig tækifæri með byrjunarliðinu í fjarveru Álvaro Carreras sem er meiddur.

Pep Guardiola þjálfari Man City mætir til leiks með sóknarsinnað byrjunarlið, þar sem pláss er fyrir Bernardo Silva, Savinho, Antoine Semenyo, Jérémy Doku og Nico O'Reilly auk Erling Haaland sem var hvíldur um helgina.

Real Madrid hefur slegið Man City úr leik í Meistaradeildinni síðustu tvö tímabil í röð.

Á sama tíma eiga ríkjandi Evrópumeistarar Paris Saint-Germain heimaleik við heimsmeistara Chelsea, en liðin mættust í úrslitaleik HM síðasta sumar og stóðu lærlingar Enzo Maresca uppi sem öruggir sigurvegarar.

Bæði lið hafa verið hikstandi á tímabilinu og má búast við verulega áhugaverðri viðureign. Liam Rosenior þekkir vel til PSG eftir að hafa mætt þeim í frönsku deildinni sem þjálfari Strasbourg.

PSG og Chelsea mæta bæði til leiks með sín sterkustu byrjunarlið og eru þau bæði með vel mannaða varamannabekki. Þar má finna ýmsa leikmenn sem geta komið inn af bekknum til að breyta gangi mála.

Filip Jörgensen er á milli stanga Chelsea í stað Robert Sánchez.

Real Madrid: Courtois, Alexander-Arnold, Huijsen, Rüdiger, Mendy, Valverde, Tchouaméni, Güler, B.Diaz, Pitarch, Vinicius
Varamenn: Lunin, Gonzalez, Carvajal, Camavinga, Asencio, F.Garcia, G.Garcia, Mastantuono, Aguado, Cestero, Angel, Palacios

Man City: Donnarumma, Khusanov, Dias, Guéhi, O’Reilly, Rodri, B.Silva, Savinho, Semenyo, Doku, Haaland
Varamenn: Trafford, Bettinelli, Reijnders, Stones, Ake, Marmoush, Cherki, Nico, Ait-Nouri, Nunes, Foden, Alleyne



PSG: Safonov; Hakimi, Marquinhos, Pacho, Mendes; Zaire-Emery, Vitinha, J.Neves; Doue, Dembele, Barcola.
Varamenn: Chevalier, Marin, Beraldo, Zabarnyi, Kvaratskhelia, Ramos, Lee, L.Hernandez, Mayulu, Fernandez, Mbaye.

Chelsea: Jörgensen; Gusto, Fofana, Chalobah, Cucurella; James, Caicedo; Palmer, E.Fernandez, Neto, J.Pedro.
Varamenn: Sanchez, Merrick, Acheampong, Tosin, Sarr, Badiashile, Hato, Santos, Lavia, Garnacho, Guiu, Delap.
Athugasemdir
banner
banner
banner