Andri Lucas Guðjohnsen kom inn af bekknum í jafnteflisleik Blackburn Rovers gegn Portsmouth um síðustu helgi og varð fyrir meiðslum á ökkla á lokamínútunum.
Hann er því ekki með í leikmannahópi Blackburn Rovers sem er að spila gríðarlega mikilvægan fallbaráttuslag við Oxford United í Championship deildinni þessa stundina og verður heldur ekki með í næsta leik liðsins gegn toppbaráttuliði Millwall.
Andri yfirgaf leikvanginn á hækjum eftir jafnteflið gegn Portsmouth og þarf að gangast undir rannsóknir til að úrskurða um hversu alvarleg meiðslin eru.
„Ökklin hans Andra var stökkbólginn eftir leikinn. Hann er búinn að fara í röntgen og aðrar rannsóknir og þarf núna að vinna með sérfræðingi næstu daga áður en við getum talað um hversu lengi hann verður frá," sagði Michael O'Neill þjálfari Blackburn fyrir leik liðsins gegn Oxford.
„Við getum ekki sagt neitt með vissu fyrr en eftir að hann hittir sérfræðinginn. Við höfum áhyggjur en við vonum það besta."
Andri var að standa sig vel með Blackburn fyrir áramót en hefur ekki fundið taktinn aftur eftir að hann missti af einum mánuði vegna meiðsla. Hann skoraði 7 mörk í 11 deildarleikjum fyrir meiðslin og er búinn að koma við sögu í 8 leikjum eftir endurkomu úr meiðslum án þess að skora.
Blackburn er í fallbaráttu í Championship, með 39 stig eftir 36 umferðir aðeins einu stigi frá fallsvæðinu.
Athugasemdir


