Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 20. febrúar 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd ætlar að berjast við Inter um leikmann Barcelona
Mynd: EPA
Manchester United hefur mikinn áhuga á að fá spænska vinstri bakvörðinn Alejandro Balde frá Barcelona í sumar en þetta kemur fram í Mundo Deportivo.

Balde er 22 ára gamall og verið byrjunarliðsmaður í bakverðinum stærstan hluta tímabilsins.

Hann er hins vegar ekki sagður ósnertanlegur og gæti Barcelona verið tilbúið að ganga að samningaborðinu.

Mundo Deportivo segir að Man Utd sé reiðubúið að leggja fram allt að 35 milljóna punda tilboð, en Barcelona vill hærri upphæð.

Félögin munu ræða saman um Marcus Rashford, sem er á láni hjá Barcelona frá Man Utd, á næstu vikum. Vilji Barcelona er að gera skipti Rashford varanleg og gætu Börsungar lækkað verðmiðann á honum með því að senda Balde í hina áttina.

Ítalska félagið Inter er einnig áhugasamt um Balde sem er samningsbundinn Barcelona til 2028.
Athugasemdir
banner