Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
   sun 20. mars 2016 19:53
Jóhann Ingi Hafþórsson
Egilshöll
Gregg Ryder: Þetta var 100% ekki víti
Verðum tilbúnir þegar alvöru leikirnir koma
Gregg Ryder.
Gregg Ryder.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Við vorum klárlega á móti betra liði," viðurkenndi Gregg Ryder, þjálfari Þróttar eftir 2-0 tap gegn FH í Lengjubikarnum í dag.

FH vann leikinn, 2-0 en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  2 FH

„Við vorum með sex leikmenn í stúkunni sem gátu ekki spilað af mismunandi ástæðum en FH var betra liðið í dag."

Við spurðum Gregg út í stöðunna á leikmönnunum sem voru ekki með í dag.

„Við erum að bíða eftir að geta skráð einn til leiks. Hinir eru nýkomnir og við viljum ekki flýta okkur of mikið að láta þá spila en þeir eru allir að æfa á fullu. Við förum til Spánar í næstu viku og þeir munu spila leiki þar úti."

Gregg var spurður á hvaða sviðum FH var betra liðið.

„Þeir notuðu boltann betur, ég var ánægður með varnarleikinn hjá okkur en þeir hreyfðu boltann betur en við."

Fyrra mark FH kom úr víti en það virtist ekki vera mikið brot í því atviki.

„Þetta var 100% ekki víti, það kom fyrirgjöf á Kristján var kannski með hendur á honum en boltinn var farinn útaf og svo dettur hann. Þetta var klárlega ekki víti en þar sem hann gefur það áttum við að fá þrjú víti í seinni hálfleik. Það var ekki samræði þar."

Gregg segir liðið hafa gert betur, manni fleiri.

„Við fengum færi, við sköpuðum færi og við sóttum á þá og við erum smá vonsviknir að hafa ekki fengið eitthvað úr leiknum en þetta er bara undirbúningstímabilið, svo þetta er í lagi."

Þróttur er búið að tapa öllum leikjum sínum í Lengjubikarnum hingað til en Gregg hefur engar áhyggjur af stöðu mála.

„Nei, ég veit að fólk er að tala um það og það er í lagi, á síðustu leiktíð áttum við ekki gott undirbúningstímabil og við komumst upp. Við höfum ekki áhyggjur. Við erum að vinna í atriðum á æfingu og það sést í flestum tilvikum í leikjum."

„Við verðum alveg tilbúnir þegar alvöru leikirnir koma."

Viðtalið við Gregg má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner