Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 20:16
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Bríet Fjóla réði úrslitum í Boganum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
1-0 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('10)

Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði eina mark leiksins er sameinað lið Þórs og KA mætti sameinuðu liði Grindavíkur og Njarðvíkur í hörkuslag, en bæði þessi lið leika í Bestu deildinni komandi sumar.

Bríet Fjóla skoraði strax á tíundu mínútu og tókst heimakonum að halda hreinu til að tryggja sér sigur.

Grindavík/Njarðvík fann ekki leið til að setja boltann í netið og tapaði, svo liðið er núna með þrjú stig eftir tvær umferðir.

Þetta er fyrsti sigur Þórs/KA eftir tvo tapleiki í fyrstu umferðunum og er liðið því komið með þrjú stig eftir þrjár umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner