Manchester United hefur gefið Mason Greenwood aðvörðun eftir að hafa mætt of seint á æfingar.
Forráðamenn United hafa minnt Greenwood á ábyrgðina sem fylgir því að vera leikmaður félagsins.
Greenwood var hent úr enska landsliðinu ásamt Phil Foden eftir að þeir buðu tveimur stelpum á hótel enska landsliðsins á Íslandi.
Hinn 19 ára gamli Greenwood hefur gerst sekur um að mæta of seint á æfingar og fleira að undanförnu að sögn Sky.

Greenwood er að glíma við smávægileg meiðsli í augnablikinu en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum gegn Newcastle og PSG.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, neitaði í vikunni fyrir að Greenwood hafi verið í agabanni gegn Newcastle en Sky segir að leikmaðurinn hafi hins vegar fengið aðvörun frá félaginu fyrir hegðun sína að undanförnu.
Athugasemdir