Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FC Köln sem tók á móti Borussia Mönchengladbach í efstu deild þýska boltans í dag.
Liðin mættust í mikilvægum fallbaráttuslag og úr varð gríðarlega skemmtileg viðureign þar sem liðin skiptust á að taka forystuna.
Gladbach náði forystunni eftir 26 sekúndur þegar Jens Castrop slapp í gegn og lagði Ísak upp jöfnunarmarkið þremur mínútum síðar.
Ísak sótti boltann djúpt á vellinum, snéri sér laglega við og sá gott hlaup hjá Said El Mala úr fjarska. Íslenski landsliðsmaðurinn hugsaði sig ekki tvisvar um og gerði mjög vel að gefa langan bolta sem rataði beint í hlaupið hjá El Mala sem gerði mjög vel að klára með marki. Sjáðu markið
Skömmu síðar náðu heimamenn í Köln forystunni þegar Ragnar Ache skoraði en Philipp Sander jafnaði á 20. mínútu, eftir undirbúning frá Castrop, svo staðan var 2-2 í leikhlé.
Gladbach hrifsaði forystuna til sín í annað sinn í leiknum og var Castrop aftur á ferðinni. Í þetta sinn skoraði hann draumamark með mögnuðu skoti utan vítateigs. Sjáðu markið
Ísaki var skipt af velli á 70. mínútu, enda kominn með gult spjald, og náði Köln að jafna metin korteri síðar. Eric Martel var þar á ferðinni en fjórum mínútum síðar lét hann reka sig af velli.
Lokatölur urðu 3-3 og er Köln tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið, þremur stigum á eftir Gladbach.
21.03.2026 16:31
Þýskaland: Bayern hótar að jafna metið
Athugasemdir



