Michael Carrick þjálfari Manchester United staðfesti að samningsviðræður væru í gangi við Harry Maguire og Kobbie Mainoo þegar hann svaraði spurningum eftir 2-2 jafntefli við Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
20.03.2026 18:40
Í samningaviðræðum við Maguire og Mainoo
Maguire er aðeins með nokkra mánuði eftir af sínum samningi á meðan Mainoo er ennþá með rúm tvö ár eftir. Búist er við að Maguire, sem er 33 ára, fái samning til 2027 á meðan Mainoo, 20 ára, fær langtímasamning og veglega launahækkun.
„Við erum í samningsviðræðum við leikmennina og ég vona að það gangi allt upp. Þeir hafa báðir verið frábærir og voru valdir í enska landsliðið, þar sem þeir eiga skilið að vera. Ég tengist þessum viðræðum ekki neitt og veit ekki hversu langt þær eru komnar," sagði Carrick eftir jafnteflið.
Maguire var skúrkurinn í janfteflinu. Man Utd leiddi 1-2 í Bournemouth þegar Maguire braut klaufalega af sér sem aftasti varnarmaður innan vítateigs. Stuart Attwell dómari dæmdi vítaspyrnu og rautt spjald og skoruðu heimamenn úr spyrnunni. United varðist vel á lokakaflanum og tók eitt stig með sér heim.
20.03.2026 23:18
Carrick fokillur: Dómarinn gaf þeim jöfnunarmarkið
Athugasemdir





