Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kristian og Júlíus á skotskónum - Dýrmætur sigur Hearts
Mynd: EPA
Mynd: Elfsborg
Kristian Nökkvi Hlynsson var á sínum stað í byrjunarliði FC Twente sem skóp sigur á útivelli gegn Fortuna Sittard í efstu deild hollenska boltans.

Twente lenti undir snemma leiks og náði að jafna í síðari hálfleik þegar Sam Lammers lagði upp fyrir Daan Rots. Fimm mínútum síðar átti Lammers aðra stoðsendingu en í þetta sinn var það Kristian sem kláraði færið.

Markið hans Kristians reyndist sigurmarkið og urðu lokatölur 1-2 fyrir Twente, sem er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti.

Júlíus Magnússon skoraði þá í æfingaleik þegar Elfsborg vann 3-2 gegn AIK eftir afar dramatískan lokakafla.

Í Noregi léku Davíð Snær Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson allan leikinn í jafntefli hjá Álasundi á útivelli gegn Start í 2. umferð á nýju tímabili. Bæði lið eru með eitt stig eftir tapleiki í fyrstu umferð.

Í skoska boltanum kom Eyþór Martin Björgólfsson inn af bekknum í markalausu jafntefli hjá Motherwell gegn Hibernian. Hann fékk að spila síðustu tíu mínúturnar og siglir Motherwell lygnan sjó í fjórða sæti deildarinnar. Eyþór er varaskeifa hjá liðinu og búinn að skora eitt mark og gefa tvær stoðsendingar í níu deildarleikjum.

Tómas Bent Magnússon var þá ekki með toppliði Hearts í 1-0 sigri gegn Dundee FC vegna meiðsla. Hearts er með fimm stiga forystu á Celtic og sex stig á Rangers sem eiga bæði leik til góða.

Í neðri deildunum á Englandi er Benoný Breki Andrésson enn fjarverandi úr liði Stockport County vegna meiðsla svipað og Jason Daði Svanþórsson hjá Grimsby.

Stockport gerði jafntefli við Luton í League One á meðan Grimsby rúllaði yfir botnlið Barrow í League Two. Íslendingaliðin eru bæði í baráttu um umspilssæti.

Sittard 1 - 2 Twente
1-0 Dimitrios Limnios ('5)
1-1 Daan Rots ('55)
1-2 Kristian Nökkvi Hlynsson ('60)

Elfsborg 3 - 2 AIK
0-1 Johan Hove ('5)
1-1 Júlíus Magnússon ('31)
1-2 Kevin Filling ('84)
2-2 Rufai Mohammed ('91)
3-2 Frederik Ihler ('92)

Start 1 - 1 Aalesund

Motherwell 0 - 0 Hibernian

Hearts 1 - 0 Dundee FC

Luton 1 - 1 Stockport

Grimsby 5 - 0 Barrow

Athugasemdir
banner