Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ræða um tímamörk fyrir innköst
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stjórnendur fótboltaheimsins munu hittast í Wales í dag til að ræða ýmsa hluti og þar á meðal eru mögulegar reglubreytingar.

Ein slík er ný fimm sekúndna regla fyrir markspyrnur og innköst sem eru í sífellt meiri mæli notuð til að drepa niður tempóið í leikjum og tefja.

Muni reglan komast í gegn er ljóst að löng innköst verða úr sögunni nema að lið finni leiðir til að stilla upp og kasta langt á svo skömmum tíma. Einnig er mögulegt að kosið verði um að hafa lengri tíma heldur en umræddar fimm sekúndur.

Ef innkast tekur lengri tíma en fimm sekúndur munu andstæðingarnir fá að taka innkastið í staðinn. Ef markspyrnan tekur lengri tíma fá andstæðingarnir dæmda hornspyrnu.

Fundurinn í Wales er árlegur fundur sem FIFA sækir ásamt fótboltasamböndum Bretlands (enska, skoska, velska og norður-írska).

Ýmislegt verður rætt á fundinum, til dæmis geta VAR-dómara til að skerast inn í leikinn þegar um seinni gul spjöld er að ræða sem hingað til hefur ekki verið hægt og leiðir til að sporna við taktíkum sem hvetja til tafa í leikjum eftir góðan árangur með nýju 8-sekúndna regluna. Ef markvörður heldur á boltanum lengur en 8 sekúndur fær hann dæmda hornspyrnu gegn sér.

Þá verður einnig rætt um að leyfa VAR-dómurum að skoða vafasama hornspyrnudóma ef það kemur mark úr spyrnunni. Auk þess verður rætt um að lengja tímann sem leikmaður þarf að fara af velli ef hann fær aðhlynningu úr 30 sekúndum í eina mínútu og um að setja tímamörk fyrir skiptingar, svo leikmenn geti ekki tafið með að ganga hægt af velli þegar þeim er skipt útaf án þess að fá viðeigandi refsingu.

Góðar líkur eru á því að FIFA muni prufukeyra samþykktar reglubreytingar á HM í Norður-Ameríku komandi sumar.

Á fundinum hefur FIFA fjögur atkvæði og hvert fótboltasambanda Bretlands eitt atkvæði, svo atkvæðin eru átta í heildina.

Til að reglubreyting fari í gegn þarf hún að hljóta 75% atkvæða, eða 6 af 8 atkvæðum.
Athugasemdir
banner
banner