Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   fim 19. mars 2026 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carrick vill sjá sína menn í landsliðinu
Michael Carrick.
Michael Carrick.
Mynd: Man Utd
Núna styttist í HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar.

Það eru margir spenntir að sjá hvernig enski landsliðshópurinn verður á mótinu. England spilar æfingaleiki við Úrúgvæ og Japan í lok mánaðarins og verður hópurinn fyrir þá leiki kynntur á morgun. Sá hópur mun gefa sterka vísbendingu um það hvernig hópurinn verður í sumar.

Manchester United hefur spilað frábærlega eftir að Michael Carrick tók við liðinu og hann vonast til að sjá sína menn í hópnum á morgun og í sumar.

Er hann þá að tala um Kobbie Mainoo, Harry Maguire og Luke Shaw.

„Ég myndi elska að sjá þá í hópnum núna og í sumar," sagði Carrick.

„Ég hef engin áhrif á það en þeir hafa spilað vel og komið sér inn í myndina. Þeir eru að spila nægilega vel til að komast í hópinn."
Athugasemdir
banner