Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 08:48
Elvar Geir Magnússon
Varð fyrir hræðilegum meiðslum á fingri á Anfield
Rétt er að vara við myndum neðar í fréttinni.
Rétt er að vara við myndum neðar í fréttinni.
Mynd: EPA
Noa Lang, leikmaður Galatasaray, er á leið í aðgerð á þumalfingri eftir að hafa slasast þegar hann lenti á auglýsingaskilti á Anfield.

Lang var á fleygiferð og missti jafnvægið en setti hendina á auglýsingaskiltið til að rétta sig við en þá meiddist hann illa og var alveg sárþjáður. Þumalfingurinn var illa farinn, það blæddi duglega og hollenski leikmaðurinn fékk súrefni þegar hann fór af velli á börum.

Málið verður rannsakað en talið er að ekki hafi verið búið að auglýsingaskiltinu samkvæmt öryggiskröfum.

Liverpool vann seinni leikinn gegn Galatasaray auðveldlega 4-0 og flaug áfram í 8-liða úrslitin.




Athugasemdir
banner
banner
banner