U17 landslið kvenna tapaði gegn Austurríki fyrr í vikunni, 1-0. Austurríki fékk rautt spjald á 54. mínútu en náði að skora sigurmarkið þegar tíu mínútur voru til leiksloka.
Svekkjandi úrslit fyrir íslenska liðið sem er án stiga eftir tvo leiki í seinni umferð undankeppni EM.
Svekkjandi úrslit fyrir íslenska liðið sem er án stiga eftir tvo leiki í seinni umferð undankeppni EM.
Frakkland og Serbía eru einnig í riðlinum en riðillinn er spilaður í Serbíu. Íslenska liðið spilar lokaleik sinn í riðlinum gegn heimakonum á morgun.
Ísland á ekki lengur möguleika á að vinna riðilinn en það er mikilvægt að vinna lokaleikinn til að halda sér í A-deild.
Byrjunarlið Íslands gegn Austurríki:
12. Tinna María Herdísardóttir (m) (Stjarnan)
4. Anika Jóna Jónsdóttir (Víkingur R.)
5. Anna Heiða Óskarsdóttir (FH)
6. Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
7. Elísa Birta Káradóttir (Víkingur R.)
8. Arna Ísold Stefánsdóttir (Víkingur R.)
10. Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA)
14. Björgey Njála Andreudóttir (Selfoss)
15. Rósa María Sigurðardóttir (Stjarnan)
17. Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Stjarnan)
19. Ragnheiður Th. Skúladóttir (FH)
Athugasemdir




