Ef Liverpool heldur áfram að spila eins og liðið gerði í gær þá mun stjórinn Arne Slot þagga niður í efasemdarröddum. Þetta segir Lewis Steele, íþróttafréttamaður hjá Daily Mail.
„Arne Slot hefur legið undir höggi undanfarnar vikur en hann var fullur eldmóðs í gær. Hann var líflegri en nokkru sinni fyrr á hliðarlínunni, hoppaði um og benti í allar áttir eins og hann hefði sturtað í sig tíu orkudrykkjum í klefanum," segir Steele.
Hann segir andrúmsloftið meðal stuðningsmanna hafa verið rafmagnað á meðan leikmenn spiluðu af gríðarlegri ákefð, keyrðu yfir andstæðinga sína og unnu á endanum 4-0 sigur.

„Þetta varpar fram spurningunni: Af hverju í ósköpunum spilar Liverpool ekki svona í hverri viku? Af hverju geta þeir ekki pressað eins og hundar sem hefur verið sleppt lausum? Af hverju hafa þeir ekki náð svona oft að fá áhorfendur til að standa upp og fá ástæðu til að hrópa?"
„Talað var um þetta sem mikilvægasta leik Slot á tímabilinu, tap hefði verið hörmulegt fyrir tímabilið og högg fyrir traust stuðningsmanna á honum. Nú þarf Liverpool að sýna að þessi frammistaða hafi ekki verið frávik," segir Steele.
Liverpool Teknik Direktörü Arne Slot hakemin her karar?na niye bu kadar tepki gösteriyor?
— Abdullah Biricik (@abdullahbiricik) March 18, 2026
Sergen Yalç?n ile bir akrabal??? var m? acaba? pic.twitter.com/BzJm5d9pWc
Athugasemdir