Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 23:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Við hefðum getað unnið 10-0"
Hugo Ekitike.
Hugo Ekitike.
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Hugo Ekitike var vægast sagt ánægður eftir 4-0 sigur Liverpool gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í kvöld.

Liverpool tapaði fyrri leiknum 1-0 en það var aldrei spurning hvernig þetta myndi fara í kvöld. Yfirburðirnir voru gríðarlegir.

„Við eigum skilið að vera hérna, við erum ánægðir. Við stóðum okkur mjög vel í kvöld. Þetta hefði getað endað 10-0," sagði Ekitike eftir leik.

„Við gerðum nokkrar breytingar í hálfleik og þegar ég nýtti færið mitt þá urðum við frjálsari. Það stóðu sig allir mjög vel og við hlupum fyrir hvorn annan."

Ekitike var spurður út í Mohamed Salah sem átti mjög góðan leik. „Hann er goðsögn. Ég er mjög ánægður að hann hafi skorað sitt 50. mark (í Meistaradeildinni)."
Athugasemdir
banner