„Íran mun sniðganga Bandaríkin en ekki HM," segir Mehdi Taj, forseti íranska fótboltasambandsins, í nýju myndbandsávarpi.
Íran neitar að spila leiki sína á HM í sumar í Bandaríkjunum og hefur beðið um að leikir liðsins verði fluttir til Mexíkó. Mótið verður haldið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
FIFA vill ekki riðla leikjadagskrá mótsins Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, sagði í vikunni að þjóðin væri tilbúin að hýsa leiki Írans ef FIFA myndi biðja um það.

„Mexíkó heldur stjórnmálasambandi við öll lönd í heiminum og því munum við bíða eftir að sjá hvað FIFA ákveður," sagði hún.
Ólíklegt er að FIFA taki lokaákvörðun varðandi þátttöku Írans þar til á ráðstefnu í Vancouver þann 30. apríl. FIFA vill að Íran taki þátt á mótinu.
Vafi er um þátttöku Írans eftir að Bandaríkin gerðu, ásamt Ísrael, loftárásir á landið. Átök ríkja í Mið-Austurlöndum og Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sagst ekki geta tryggt öryggi leikmanna íranska landsliðsins á HM.
Keppnin verður haldin í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið á samkvæmt dagskrá að spila tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle. HM fer af stað þann 11. júní.
Athugasemdir