Grindavík er í þjálfaraleit fyrir karlalið sitt eftir að Helgi Sigurðsson sagði skilið við félagið fyrr í dag.
Síðasti leikur Helga var 3-1 tapleikur gegn nágrönnunum í Njarðvík á laugardaginn.
Síðasti leikur Helga var 3-1 tapleikur gegn nágrönnunum í Njarðvík á laugardaginn.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver verður eftirmaður Helga en liðið á leik gegn Vestra á miðvikudaginn. Milan Stefán Jankovic hefur verið aðstoðarmaður Helga og má leiða að því líkum að hann stýri æfingum og þeim leik meðan leitað er að eftirmanni.
Grindavík hefur gengið brösulega í Lengjudeildinni upp á síðkastið og ekki unnið leik síðan þeir unnu Ægi á útivelli 22. júní.
Liðið er í 10. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti en fyrir mótið var búist við að Grindavík myndi berjast komast upp í efstu deild. Þeir eru hinsvegar líka fjórum stigum frá 5. sætinu sem er umspilssæti fyrir Bestu-deildina þetta árið.
En hver tekur við Grindavík núna. Hérna eru tíu kandídatar sem gætu tekið við.
Ágúst Gylfason - Hefur gert góða hluti og það var umdeilt þegar Stjarnan lét hann fara fyrr á þessu tímabili. Er frískandi persónuleiki og er góður í að fá menn með sér; gæti verið akkúrat það sem Grindavík þarf á þessum tímapunkti.
Bjarni Jóhannsson - Reynslubolti sem er í leit að einu giggi til viðbótar. Bjarni hefur víða komið við og hefur hann tvisvar áður stýrt Grindavík með mjög flottum árangri.
Brynjar Björn Gunnarsson Hætti sem þjálfari HK til að taka við Örgryte í Svíþjóð á síðasta ári en entist ekki lengi þar. Er ekki í starfi í boltanum sem stendur, hefur getið sér gott orð og er með reynslu af því að fara upp úr þessari deild.
Ejub Purisevic - Bætir leikmenn og býr til öflugt skipulag. Sá árangur sem hann náði með Víking Ólafsvík á tíma sínum þar er mjög merkilegur. Starfar í dag við afreksþjálfun hjá FH.
Marko Valdimar Jankovic - Grindvíkingur í húð og hár. Hann var leikmaður hjá félaginu um langt skeið, en hann hefur starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Hönefoss í Noregi eftir að skórnir fóru upp á hillu.
Milan Stefán Jankovic - Næsti maður á listanum er faðir þess sem var á undan. Hugmynd að teymi? Milan er gríðarlega reyndur þjálfari sem hefur verið viðloðandi þjálfun í Grindavík í mörg ár.
Orri Freyr Hjaltalín - Var fyrirliði Grindavíkur til margra ára og er núna að starfa í kringum félagið. Er með reynslu af því að þjálfa í þessari deild eftir að hafa stýrt Þór Akureyri.
Ólafur Örn Bjarnason - Goðsögn í Grindavík, og hefur verið þar sem leikmaður og þjálfari. Stýrði Grindavík 2010 og 2011 en hefur verið að þjálfa í Noregi undanfarin ár. Væri hann tilbúinn að taka þetta verkefni að sér?
Óli Stefán Flóventsson - Náði mjög fínum árangri sem þjálfari Grindavíkur fyrir nokkrum árum síðan þegar liðið var uppi í efstu deild. Var líka leikmaður liðsins um langt skeið. Hefur sannað það að hann er flottur þjálfari en hann er núna að þjálfa Sindra í 2. deild.



