Ég vorkenndi Gísla Páli Helgasyni leikmanni Þórs mikið þegar ég ræddi við hann í dag. Gísli Páll gekk til liðs við uppeldisfélag sitt Þór á ný í vor og frá undirskrift var laugardagurinn 11. júlí sá leikdagur sem hann beið langspenntastur eftir í sumar. Þá mætast Þór og KA í grannaslag í fyrsta skipti í deildarkeppni síðan árið 2012.
Meira »
Ég heiti Sigurbergur Elisson og er 23 ára gamall. Ég spila fótbolta með Keflavík og hef gert það frá því að ég byrjaði í fótbolta 4 ára gamall. Ég hef barist við þunglyndi og mikinn kvíða undafarin ár. Þetta er sagan mín.
Meira »
Reglulega verður maður vitni að því að knattspyrnumenn missi sig í leikjum, þeir brjóta illa af sér, rífa kjaft við dómarann eða gera eitthvað annað misgáfulegt. Oftar en ekki uppsker leikmaðurinn rautt spjald og leikbann að launum. Strax í kjölfarið er farið að ræða umrætt atvik og oft reynt að afsaka gjörðir leikmannsins. Er þá oft gripið til þeirrar afsökunar að atvikið hafi gerst í hita leiksins, spennustigið hátt og leikmaðurinn hafi ekki ætlað að meiða neinn. Þær afsakanir eru oftast góðar og gildar en engu að síður verður maður að spyrja sig; er ekki hægt að gera sömu kröfur til atvinnumanna í knattspyrnu og gerðar eru til annarra starfstétta þegar kemur að því að halda haus við mikið spennustig og haga sér sómasamlega?
Meira »
Síðastliðið föstudagskvöld stóð íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu frammi fyrir sinni stærstu prófraun til þessa þegar Tékkland mætti í heimsókn á Laugardalsvöllinn í undankeppni EM 2016 í Frakklandi.
Þetta var sjötti leikur liðsins í þessari undankeppni, toppslagur gegn eina liðinu sem hafði sigrað okkur til þessa. Ljóst var að sigur í þessum leik hefði gríðarlega mikla þýðingu á meðan tap gæti haft óskemmtilegar afleiðingar. Meira »
Þetta var sjötti leikur liðsins í þessari undankeppni, toppslagur gegn eina liðinu sem hafði sigrað okkur til þessa. Ljóst var að sigur í þessum leik hefði gríðarlega mikla þýðingu á meðan tap gæti haft óskemmtilegar afleiðingar. Meira »
Reglulega heyrast háværar raddir sem kvarta yfir því að umfjöllun fjölmiðla um kvennaknattspyrnu sé mun minni og lélegri heldur en umfjöllun um karlaknattspyrnu.
Meira »
Síðan enska úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992 hafa 5 lið unnið titilinn á þeim tæpa aldarfjórðungi sem liðinn er. Þar er lið Manchester United afgerandi en á fyrstu árum úrvaldeildarinnar var Manchester United risi á knattspyrnusviðinu enska sama hvernig á það er litið. Liðið var langríkast með lang stærsta aðdáendahópinn. Í dag áætla menn að fjöldi stuðningsmanna þeirra sé á bilinu 0,6-0,7 milljarðar manna. Staða þeirra var ekki ósvipuð stöðu Beyern Munchen í þýskalandi í dag. Á leikmannamarkaði var liðið ekki í nokkurri samkeppni við önnur ensk lið og sótti sér þá leikmenn sem það taldi henta auk þess sem uppaldir leikmenn liðsins reyndust frábærlega á þessum árum. Arsenal (2) og Blackburn (1) komast þó óvænt upp fyrir United stöku sinnum á fyrsta áratug úrvaldsdeildarinnar.
Meira »
Það sem margir hafa beðið eftir í fjölda ára varð loks að veruleika í gær. Fjöldi yfirmanna innan FIFA voru þá handteknir og kærðir fyrir spillingu eftir rannsókn FBI og verða þeir framseldir til Bandaríkjanna. Hér að neðan er stutt úttekt úr ákærunni sem gefin var út í gær og ýmislegt sem hinir handteknu hafa verið kærðir fyrir.
Meira »
Ef það er kalt úti er stráknum sagt að klæða sig betur og bíta á jaxlinn á meðan stelpan er spurð hvort hún vilji ekki bara vera heima og sleppa æfingu. Ef strákurinn er á leið á fótboltamót út á landi er öll fjölskyldan drifin með að fylgjast með kappanum – stolti fjölskyldunnar. Systir hans, sem á að fara á mót með sínum flokki tveimur vikum síðar, fær ekki eins góðar undirtektir á heimilinu vegna sinnar ferðar. Kannski skellir mamma sér með og horfir á ef fjölskyldan er þá ekki búin að plana utanlandsferð eða ættarmót.
Meira »
Hugmyndir sem ég tel að verði að halda á lofti og eru betri því meira sem ég hugsa um þær: Er ekki málið að breyta töfluröð Pepsi-deildarinnar á þann veg að líkurnar á því að fá þýðingarmikla toppbaráttuleiki í lokin verði meiri?
Meira »
Á morgun hefst keppni í efstu deild Noregs eða Tippeligunni eins og hún heitir og spennan er mikil fyrir komandi tímabili þar sem flestir ef ekki allir nema kannski stuðningsmenn Rosenborg spá meisturunum í Molde sigri.
Meira »
Það munu miklu færri en vilja komast að á Laugardalsvellinum þann 12. júní þegar Ísland fær Tékkland í heimsókn og fær tækifæri til að hefna ófaranna í Plzen. Allt hráefni er til staðar til að búa til ógleymanlegan dag.
Meira »
Á laugardaginn verður feiknarlega mikilvægur landsleikur Íslands gegn Kasakstan hér í Astana. Leikur sem Ísland á að taka þrjú stig í ef liðið ætlar sér í lokakeppni EM.
Fyrstu dagar undirbúningsins hafa mikið farið í að rétta tímamismuninn af enda má segja að leikið sé í Asíu. Kasakstan lék undir knattspyrnusambandi Asíu en færði sig í UEFA eftir aldamótin. Meira »
Fyrstu dagar undirbúningsins hafa mikið farið í að rétta tímamismuninn af enda má segja að leikið sé í Asíu. Kasakstan lék undir knattspyrnusambandi Asíu en færði sig í UEFA eftir aldamótin. Meira »
Þeir voru ansi margir knattspyrnuáhugamennirnir og sparkspekingarnir sem tættu í sig enska knattspyrnu eftir að Chelsea datt úr leik gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Þó það sé vissulega of snemmt að fullyrða nokkurn skapaðan hlut verður að teljast frekar líklegt að ekki eitt einasta enskt lið muni tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í ár. Slíkt verður að teljast mikið áfall fyrir knattspyrnuna þar í landi. Meira »
Þó það sé vissulega of snemmt að fullyrða nokkurn skapaðan hlut verður að teljast frekar líklegt að ekki eitt einasta enskt lið muni tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í ár. Slíkt verður að teljast mikið áfall fyrir knattspyrnuna þar í landi. Meira »
Tognun aftan í læri er ekki alltaf tognun aftan í læri. Alltof algengt er að íþróttamaður sem fær verk aftan í læri sé greindur með tognun í vöðva, svo kölluð tognun í Hamstrings vöðva. Það er því miður ekki alltaf rétt greining. Ef um endurtekna verki aftan í læri er um að ræða og verkurinn er stundum neðarlega í lærinu og stundum upp við rasskinn, sem sagt ekki alltaf alveg á sama stað þá er ekki um tognun í vöðva að ræða. Ef að verkurinn í lærinu fer á nokkrum dögum og viðkomandi getur farið að hlaupa eftir viku þá er ekki um tognun að ræða. Stífleiki í vöðvanum sem ekki fer er ekki vegna tognunar í vöðvanum. Öll þessi dæmi er ábending að verkurinn komi frá bakinu. Ég sem sjúkraþjálfari í Gáska hef séð allt of mörg tilfelli um ranglega greindar tognanir aftan í læri. Við einfalda skoðun kemur í ljós að verkurinn í lærinu er frá taugaertingu í baki.
Meira »
Um nýliðna helgi var haldið ársþing KSÍ og á föstudag málþing um stöðu kvenna innan íþróttahreyfingarinnar. Á þessum tveimur viðburðum var ýmislegt til umfjöllunar sem vekja má athygli á til viðbótar því sem fjölmiðlar mátu fréttnæmast.
Meira »
Nú þegar stutt er í að Martin Ödegaard fari að halda bolta á lofti fyrir framan fjölmiðlafólk og aðdáendur Real Madrid er Noregur á hliðinni. Vonarstjarna norska boltans númer eitt er loksins búin að velja sér félag eftir að hafa ferðast um alla Evrópu og látið dekra við sig hjá stórliðum.
Meira »
Championship deildin er næst efsta deildin á Englandi og þegar tímabilið er að verða hálfnað er lið Bournemouth á toppnum. Hér að neðan er rennt yfir sögu Bournemouth og stjóra þess Eddie Howe sem hefur unnið kraftaverk með liðið.
Meira »
Ég hef verið Arsenal maður frá því að frændi minn gaf mér Arsenal handklæði 1982 en þá var ég sjö ára gamall. Allar götur síðan hef ég fylgst vel með með liðinu vaxa og dafna. Ég veit t.d eins og flestir Arsenalmenn, nákvæmlega hvað ég var að gera 26.maí 1989 þegar Michael Thomas tryggði Arsenal meistaratitlinn með marki á lokamínútunni á móti Liverpool á Anfield.
Meira »
Þakkir til Tólfunnar og annarra stuðningsmanna íslenskra landsliða
Leikur A landsliðs karla gegn Tékklandi í Plzen nú nýverið var lokaleikur A landsliða okkar á þessu ári og rétt að gefa því aðeins gaum hvernig til hefur tekist. Ítrekað hefur verið farið yfir árangur landsliða okkar á síðustu misserum og er ætlunin ekki að rifja hann upp, heldur beina sjónum að þeim hluta landsliðanna sem hefur færst verulega í aukana að undanförnu, þ.e. stuðningsmönnum. Meira »
Leikur A landsliðs karla gegn Tékklandi í Plzen nú nýverið var lokaleikur A landsliða okkar á þessu ári og rétt að gefa því aðeins gaum hvernig til hefur tekist. Ítrekað hefur verið farið yfir árangur landsliða okkar á síðustu misserum og er ætlunin ekki að rifja hann upp, heldur beina sjónum að þeim hluta landsliðanna sem hefur færst verulega í aukana að undanförnu, þ.e. stuðningsmönnum. Meira »