Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. júlí 2019 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Huddersfield refsað út af nýju treyjunni?
Mynd: Huddersfield Town
Enska knattspyrnusambandið hefur haft samband við Huddersfield út af nýju treyjunni sem Huddersfield spilaði í gegn Rochdale í æfingaleik í gær. Huddersfield sigraði leikinn 3-1.

Fyrr sama dag tilkynnti Huddersfield um nýja heimabúninga sem liðið ætlar sér að spila í á komandi leiktíð.

Knattspyrnusambandið hafði samband við félagið vegna styrktaraðilans sem er framan á treyjunni en Paddy Power er mjög áberandi framan á treyjunni.

Knattspyrnusambandið segist vera með einfaldar reglur sem Huddersfield sé að brjóta. Auglýsing framan á treyjunni má einungis vera í heild 200 fersentímetrar.

Auglýsingin má einungis vera á einu svæði framan á treyjunni og telur knattspyrnusambandið að nýja treyjan uppfylli ekki þau skilyrði.
Athugasemdir
banner
banner