Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 22. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eva María skrifar undir fyrsta samninginn við HK
Kvenaboltinn
Mynd: HK
Eva María Ívarsdóttir, sem er fædd árið 2010, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild HK.

Eva María sem er öflugur varnarmaður gerir samning við HK til 2028

Eva María er uppalin í HK. Hún hefur nú í vetur verið hluti af æfingahópi meistaraflokks kvenna og tekið þátt í æfingaleikjum, og einnig spilað sinn fyrsta meistaraflokksleik í Lengjubikarnum.

Einnig hefur hún verið valin í æfingahóp U16 landsliðsins.

„Við erum spennt að fylgjast með Evu Maríu eflast innan vallar sem utan innan raða HK á komandi árum," segir í tilkynningu frá HK.
Athugasemdir
banner
banner