Como 5 - 0 Pisa
1-0 Assane Diao ('7 )
2-0 Anastasios Douvikas ('29 )
3-0 Martin Baturina ('48 )
4-0 Nico Paz ('75 )
5-0 Maximo Perrone ('81 )
1-0 Assane Diao ('7 )
2-0 Anastasios Douvikas ('29 )
3-0 Martin Baturina ('48 )
4-0 Nico Paz ('75 )
5-0 Maximo Perrone ('81 )
Como tók á móti fallbaráttuliði Pisa í fyrsta leik dagsins í efstu deild á Ítalíu og gjörsamlega rúllaði yfir andstæðinga sína.
Assane Diao var besti leikmaður vallarins í fyrri hálfleik þar sem hann skoraði og lagði svo upp fyrir Tasos Douvikas. Fyrst komst Diao inn í slaka sendingu hjá leikmanni Pisa og gerði vel að klára færið með marki, áður en hann gerði mjög vel að búa til mark fyrir Douvikas úr skyndisókn.
Staðan var 2-0 í leikhlé og héldu yfirburðir Como áfram í síðari hálfleik.
Martin Baturina gerði vel að bæta við þriðja marki Como áður en Nico Paz skoraði með góðu skoti eftir stoðsendingu frá Alberto Moreno, fyrrum bakverði Liverpool.
Máximo Perrone, fyrrum leikmaður Manchester City, skoraði fimmta og síðasta mark leiksins eftir góðan undirbúning frá Nicolas-Gerrit Kühn.
Lokatölur urðu því 5-0 fyrir Como sem er búið að vinna fimm deildarleiki í röð og er í góðri stöðu í meistaradeildarsæti. Como er óvænt fyrir ofan bæði Juventus og Roma á stöðutöflunni þegar aðeins átta umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Athugasemdir



