Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 18:46
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Max og Pétur með fernur
Mynd: Boreal
Mynd: Reynir Sandgerði
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Það voru fjórir leikir spilaðir í Mjólkurbikar karla í dag þar sem mesta spennan var við Fagralund í Kópavogi.

Smári sló þar Skallagrím úr leik eftir skemmtilega viðureign. Ýmir Halldórsson náði forystunni fyrir heimamenn en Elís Dofri Gylfason jafnaði svo staðan var 1-1 í leikhlé.

Í síðari hálfleik voru þrjú mörk skoruð á fjögurra mínútna kafla. Fyrst tók Börkur Bernharð Sigmundsson forystuna fyrir Skallagrím en Ýmir jafnaði metin skömmu síðar með öðru marki sínu í leiknum.

Það leið ekki á löngu þar til Hilmir Vilberg Arnarsson setti boltann í netið á 58. mínútu og reyndist það sigurmarkið fyrir Smára sem fer áfram í næstu umferð.

Reynir Sandgerði og Elliði unnu þá stórsigra á meðan Neisti Djúpavogi fór létt með Einherja.

Max William Leitch setti fernu á tæpum hálftíma í stórsigri Sandgerðinga og skoraði Pétur Óskarsson fjögur fyrir Elliða.

Smári 3 - 2 Skallagrímur
1-0 Ýmir Halldórsson ('24 )
1-1 Elís Dofri G Gylfason ('36 )
1-2 Börkur Bernharð Sigmundsson ('55 )
2-2 Ýmir Halldórsson ('56 )
3-2 Hilmir Vilberg Arnarsson ('58 )

RB 1 - 7 Reynir S.
0-1 Helgi Rúnar Hafsteinsson ('29 )
1-1 Keston George ('41 )
1-2 Ingólfur Sigurðsson ('53)
1-3 Jordan Smylie ('56 )
1-4 Max William Leitch ('57 )
1-5 Max William Leitch ('66 )
1-6 Max William Leitch ('83 )
1-7 Max William Leitch ('85 )

Elliði 9 - 0 Reynir H
1-0 Pétur Óskarsson ('20 )
2-0 Gylfi Gestsson ('30 )
3-0 Benedikt Elí Bachmann ('33 )
4-0 Nikulás Ingi Björnsson ('38 )
5-0 Pétur Óskarsson ('70 )
6-0 Nikulás Ingi Björnsson ('73 )
7-0 Óttar Ögmundsson ('76 )
8-0 Pétur Óskarsson ('87 )
9-0 Pétur Óskarsson ('90 )

Einherji 2 - 5 Neisti D.
0-1 Birgir Hákon Jóhannsson ('6)
0-2 Birgir Hákon Jóhannsson ('20 )
0-3 Viktor Ingi Sigurðarson ('24 )
0-4 Vilmar Óli Ragnarsson ('29 )
1-4 Björgvin Stefán Pétursson ('40 )
1-5 Viktor Ingi Sigurðarson ('66 )
2-5 Maxim Iurcu ('88)
Athugasemdir
banner
banner