Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 21:21
Ívan Guðjón Baldursson
Rosenior: Erum með 17 stig úr 10 leikjum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liam Rosenior svaraði spurningum eftir 3-0 tap Chelsea á útivelli gegn Everton í baráttunni um evrópusæti.

Everton sýndi flotta frammistöðu á heimavelli og nýtti færin sín til að leggja stjörnum prýtt lið Chelsea að velli.

„Við verðum að hrósa Everton því þeir spiluðu frábæran leik, en frá okkar sjónarhorni þá vorum við alltof lélegir. Við verðum að spila betri fótbolta heldur en við gerðum í dag. Við fengum tækifæri til að taka forystuna og líka til að jafna, en við nýttum þau ekki," sagði Rosenior, en Chelsea steinlá á dögunum gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Tapið í Meistaradeildinni spilar sinn þátt en við vildum nýta þennan leik til að koma okkur aftur á sigurbraut og hressa hópinn, en það gekk ekki eftir. Þetta var mikilvægur leikur sem við töpuðum á erfiðum kafla fyrir strákana. Síðustu tíu dagar hafa verið erfiðir með mikið af ferðalögum og erfiðum leikjum á háu tempói.

„Ég er bara einbeittur að starfinu mínu hér, ég er ekki að hugsa um orðróma um framtíðina mína. Í dag er ég þjálfari Chelsea og það er allt sem skiptir máli. Við erum búnir að spila 10 leiki undir minni stjórn í úrvalsdeildinni og við erum ekki á jafn slæmum stað og mætti ætla miðað við umræðuna, við erum bara einu stigi frá meistaradeildarsæti."


Chelsea á næst heimaleik við Port Vale í 8-liða úrslitum enska bikarsins í byrjun apríl en liðið er dottið úr leik í Evrópu og er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni.

„Við erum með 17 stig úr 10 leikjum í úrvalsdeildinni undir minni stjórn sem er fjórði besti árangurinn í deildinni. Við megum ekki hlusta á utanaðkomandi raddir, við verðum að einbeita okkur að vegferðinni sem við erum á. Við þurfum að leggja vinnu á okkur til að bæta okkur en það mikilvægasta er að halda haus. Við verðum að vera rólegir og yfirvegaðir.

„Þetta landsleikjahlé kemur á góðum tíma fyrir okkur. Við ætlum að enda tímabilið af krafti."


   21.03.2026 19:40
England: Everton skellti Chelsea

Athugasemdir
banner