Juventus 1 - 1 Sassuolo
1-0 Kenan Yildiz ('14 )
1-1 Andrea Pinamonti ('52 )
1-1 Manuel Locatelli ('86 , Misnotað víti)
1-0 Kenan Yildiz ('14 )
1-1 Andrea Pinamonti ('52 )
1-1 Manuel Locatelli ('86 , Misnotað víti)
Juventus tók á móti Sassuolo í síðasta leik dagsins í efstu deild á Ítalíu og skoraði Kenan Yildiz fyrsta mark leiksins eftir frábæran undirbúning frá Francisco Conceicao.
Conceicao fékk frábæra sendingu upp völlinn úr útsparki frá Mattia Perin og gerði mjög vel að koma boltanum á Yildiz sem skoraði með góðu skoti.
Juve fékk færi til að tvöfalda forystuna en tókst ekki að skora. Gestirnir frá Sassuolo refsuðu með jöfnunarmarki snemma í síðari hálfleik, þegar Andrea Pinamonti skoraði eftir laglegt samspil við Domenico Berardi.
Juve var áfram með stjórn á leiknum en átti í erfiðleikum með að búa til færi. Leikmenn liðsins fengu nokkur hálffæri en besta tækifærið kom á 86. mínútu þegar vítaspyrna var dæmd útaf hendi, en ítalski landsliðsmaðurinn Manuel Locatelli tók slakt víti sem Arijanet Muric, fyrrum markvörður Burnley, greip.
Muric bjargaði stigi með þessari vörslu og siglir Sassuolo áfram lygnan sjó um miðja deild, á meðan Juventus gæti lent þremur stigum á eftir Como í baráttunni um meistaradeildarsæti.
Juve og Como eru jöfn á stigum en lærlingar Cesc Fábregas eiga heimaleik við Pisa á morgun.
Athugasemdir


