Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir er stödd á Spáni þessa stundina þar sem hún er að hefja tveggja vikna reynsludvöl hjá Real Betis.
Hrafnhildur Eik er fædd 2009 og lék 20 deildarleiki með FHL sem féll úr Bestu deildinni í fyrra.
Það verður spennandi að sjá hvað kemur úr reynsludvölinni en Betis er í fallbaráttu í næstefstu deild á Spáni.
Hrafnhildur getur leikið sem kantmaður og miðjumaður.
Athugasemdir


