Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 21. mars 2026 22:38
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Dro skoraði er PSG endurheimti toppsætið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru þrír leikir fram í efstu deild franska boltans í dag þar sem ríkjandi meistarar Paris Saint-Germain heimsóttu Nice í lokaleik dagsins.

PSG var talsvert sterkari aðilinn og skoraði Nuno Mendes úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.

Désiré Doué tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks og fékk Youssouf Ndayishimiye að líta beint rautt spjald fyrir gróft brot á 61. mínútu.

Hinn bráðefnilegi Dro Fernández kom inn af bekknum og skoraði fimm mínútum síðar, en PSG stal honum úr röðum Barcelona í janúar. Þetta var fyrsta mark Dro frá félagaskiptunum.

Dro er aðeins 18 ára gamall og skoraði tvítugur Warren Zaïre-Emery fjórða og síðasta mark leiksins skömmu síðar, svo lokatölur urðu 0-4.

PSG endurheimtir toppsæti Ligue 1 með þessum sigri og er liðið einu stigi fyrir ofan Lens og með leik til góða í þokkabót.

Auxerre og Toulouse unnu á heimavelli í öðrum leikjum dagsins.

Nice 0 - 4 PSG
0-1 Nuno Mendes ('42, víti)
0-2 Desire Doue ('49)
0-3 Dro Fernandez ('81)
0-4 Warren Zaire-Emery ('85)
Rautt spjald: Youssouf Ndayishimiye, Nice ('61)

Auxerre 3 - 0 Brest

Toulouse 1 - 0 Lorient


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner