Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 14:22
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin og stoðsendinguna hjá Sveindísi í nótt
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane Jónsdóttir hefur farið gríðarlega vel af stað á nýju tímabili með Angel City í bandaríska kvennaboltanum.

Hún lagði upp í 4-0 sigri í fyrstu umferð og var svo allt í öllu í sigri á útivelli gegn Bay FC í nótt. Sveindís skoraði fyrsta mark leiksins, lagði það næsta upp og innsiglaði svo sjálf sigurinn með þriðja markinu í síðari hálfleik. Lokatölur 1-3 fyrir Angel City.

Þetta er mikil framför frá síðustu leiktíð þar sem Sveindís var enn í aðlögunarferli og skoraði einu sinni og gaf eina stoðsendingu í níu deildarleikjum.

   22.03.2026 08:30
Sveindís Jane allt í öllu í sigri Angel City



Athugasemdir
banner
banner
banner