Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. mars 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sveindís Jane allt í öllu í sigri Angel City
Kvenaboltinn
Sveindís er 24 ára gömul og hefur skorað 16 mörk í 56 landsleikjum.
Sveindís er 24 ára gömul og hefur skorað 16 mörk í 56 landsleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bay FC 1 - 3 Angel City
0-1 Sveindís Jane Jónsdóttir ('3)
0-2 Gisele Thompson ('32)
0-3 Sveindís Jane Jónsdóttir ('53)
1-3 Taylor Huff ('56)

Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliðinu hjá Angel City og átti stórleik í góðum sigri á útivelli gegn Bay FC í bandaríska kvennaboltanum í nótt.

Sveindís skoraði fyrsta mark leiksins á þriðju mínútu og lagði svo næsta mark upp fyrir Gisele Thompson, svo staðan var 0-2 í leikhlé.

Sveindís setti svo þriðja mark Angel City snemma í síðari hálfleik áður en Taylor Huff minnkaði muninn fyrir heimakonur sem komust þó ekki nær.

Lokatölur urðu 1-3 og er Angel City með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar. Sveindís lagði upp í fjögurra marka sigri í fyrsta leik deildartímabilsins.

Sveindís er þar með búin að skora og leggja meira upp heldur en hún gerði á síðustu leiktíð. Hún skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu í níu fyrstu leikjunum hjá Angel City en virðist vera búin að finna taktinn eftir aðlögunarferlið.

Hún er komin með tvö mörk og tvær stoðsendingar í tveimur fyrstu leikjum deildartímabilsins.
Athugasemdir
banner