Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 21. mars 2026 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
England: Chelsea gæti misst af Meistaradeildinni
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í efstu deild kvenna á Englandi í dag þar sem topplið Manchester City er í frábærri stöðu eftir stórsigur gegn Tottenham.

Khadija Shaw skoraði þrennu á fyrstu 22 mínútum leiksins og urðu lokatölur 5-2 þar sem öll mörkin nema eitt litu dagsins ljós í fyrri hálfleik.

Man City er með 46 stig eftir 18 umferðir, átta stiga forystu á Manchester United sem situr í öðru sæti.

Man Utd lagði Everton að velli í dag til að hirða annað sæti deildarinnar af Chelsea. Melvine Malard var hetja United þegar hún skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir dramatískan lokakafla, lokatölur 2-1.

Chelsea gerði á sama tíma jafntefli við London City Lionesses til að falla niður í þriðja sætið. Aðeins þrjú efstu sæti deildarinnar gefa þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og eru fráfarandi Englandsmeistarar því í bráðri hættu á að missa sætið sitt í keppninni.

Arsenal er í fjórða sæti eftir stórsigur gegn West Ham. Það var níundi sigur liðsins í röð í öllum keppnum og sá fjórði í röð í deildinni. Chloe Kelly var atkvæðamest með tvennu í 5-0 sigri.

Arsenal er aðeins tveimur stigum á eftir Chelsea en með tvo leiki til góða. Takist lærlingum Renée Slegers að vinna leikina sem eru til góða þá getur Arsenal reynt að veita Man City einhverja titilbaráttu.

City á eftir að spila fjóra leiki og þarf að misstíga sig í tveimur þeirra til að gefa Arsenal einhverja von um að stela titlinum.

Man City 5 - 2 Tottenham
1-0 Khadija Shaw ('8)
1-1 Olivia Holdt ('15)
2-1 Khadija Shaw ('18)
3-1 Khadija Shaw ('21)
4-1 Kerolin ('37)
5-1 A. Nilden ('45, sjálfsmark)
5-2 Bethany England ('85)

Man Utd 2 - 1 Everton
1-0 Elisabeth Terland ('38)
1-1 Inma Gabarro ('90)
2-1 Melvine Malard ('94)

London City 1 - 1 Chelsea
0-1 Johanna Rytting Kaneryd ('22)
1-1 Isobel Goodwin ('82)

Arsenal 5 - 0 West Ham
1-0 Stina Blackstenius ('4)
2-0 Alessia Russo ('47)
3-0 Chloe Kelly ('55)
4-0 Chloe Kelly ('80)
5-0 Beth Mead ('90)
Stöðutaflan England England - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Manchester City W 18 15 1 2 52 15 +37 46
2 Man Utd W 18 11 5 2 37 17 +20 38
3 Chelsea W 18 11 4 3 32 15 +17 37
4 Arsenal W 16 10 5 1 33 10 +23 35
5 Tottenham W 18 9 2 7 29 31 -2 29
6 Everton W 18 6 2 10 21 29 -8 20
7 London City Lionesses W 18 6 2 10 19 30 -11 20
8 Brighton W 16 5 2 9 20 22 -2 17
9 Aston Villa W 17 4 5 8 22 36 -14 17
10 Liverpool W 17 3 4 10 17 27 -10 13
11 West Ham W 18 3 3 12 15 40 -25 12
12 Leicester City W 16 2 3 11 8 33 -25 9
Athugasemdir
banner
banner