Arne Slot þjálfari Liverpool varð fyrir vonbrigðum þegar lærisveinar hans töpuðu gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Staðan var jöfn eftir jafnan fyrri hálfleik en Brighton tók öll völd á vellinum í síðari hálfleiknum og stóð uppi sem sigurvegari. Lokatölur urðu 2-1 en Brighton hefði getað unnið stærra með betri færanýtingu.
Þetta var tíunda tap Liverpool á úrvalsdeildartímabilinu og segist Slot vita hvað vandamálið er.
21.03.2026 16:55
Liverpool með fleiri töp en síðustu tvö tímabil samanlagt
„Þetta er alltaf sama sagan á þessu tímabili. Við eigum mjög góðan leik í Meistaradeildinni og ætlum að byggja á því í næsta deildarleik en lendum svo í áföllum með meiðsli og töpum með að fá mark á okkur seint í leiknum," sagði Arne Slot, en Liverpool rúllaði yfir Galatasaray í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í miðri viku eftir að hafa tapað fyrri leiknum naumlega á útivelli.
„Annað sem við erum að lenda mikið í er að andstæðingarnir skora úr sínu fyrsta marktækifæri. Það breytir því samt ekki að Brighton var sterkara liðið í seinni hálfleik og verðskuldaði sigurinn."
Liverpool hefur tapað fimm af þeim tíu deildarleikjum sem liðið hefur spilað eftir viðureignir sínar í Meistaradeildinni á leiktíðinni.
„Það er skiljanlegt að fólk beri miklar vonir til liðsins eftir að við unnum deildina í fyrra og keyptum inn nýja leikmenn fyrir 450 milljónir. Allir bjuggust við meiru frá okkur. Fótboltasérfræðingarnir, fjölmiðlar, ég og stuðningsmenn.
„Við erum að rýna í málið til að finna út nákvæmlega hvað fór úrskeiðis í ár útaf því að svona gengi er ekki viðunandi sama hvað ég segi svo við ykkur á fréttamannafundum og í viðtölum."
21.03.2026 16:38
Slot: Það er alltaf pressa hjá Liverpool
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 31 | 21 | 7 | 3 | 61 | 22 | +39 | 70 |
| 2 | Man City | 30 | 18 | 7 | 5 | 60 | 28 | +32 | 61 |
| 3 | Man Utd | 31 | 15 | 10 | 6 | 56 | 43 | +13 | 55 |
| 4 | Aston Villa | 30 | 15 | 6 | 9 | 40 | 37 | +3 | 51 |
| 5 | Liverpool | 31 | 14 | 7 | 10 | 50 | 42 | +8 | 49 |
| 6 | Chelsea | 31 | 13 | 9 | 9 | 53 | 38 | +15 | 48 |
| 7 | Brentford | 31 | 13 | 7 | 11 | 46 | 42 | +4 | 46 |
| 8 | Everton | 31 | 13 | 7 | 11 | 37 | 35 | +2 | 46 |
| 9 | Fulham | 31 | 13 | 5 | 13 | 43 | 44 | -1 | 44 |
| 10 | Brighton | 31 | 11 | 10 | 10 | 41 | 37 | +4 | 43 |
| 11 | Newcastle | 30 | 12 | 6 | 12 | 43 | 43 | 0 | 42 |
| 12 | Bournemouth | 31 | 9 | 15 | 7 | 46 | 48 | -2 | 42 |
| 13 | Sunderland | 30 | 10 | 10 | 10 | 30 | 35 | -5 | 40 |
| 14 | Crystal Palace | 30 | 10 | 9 | 11 | 33 | 35 | -2 | 39 |
| 15 | Leeds | 31 | 7 | 12 | 12 | 37 | 48 | -11 | 33 |
| 16 | Tottenham | 30 | 7 | 9 | 14 | 40 | 47 | -7 | 30 |
| 17 | Nott. Forest | 30 | 7 | 8 | 15 | 28 | 43 | -15 | 29 |
| 18 | West Ham | 30 | 7 | 8 | 15 | 36 | 55 | -19 | 29 |
| 19 | Burnley | 31 | 4 | 8 | 19 | 33 | 61 | -28 | 20 |
| 20 | Wolves | 31 | 3 | 8 | 20 | 24 | 54 | -30 | 17 |
Athugasemdir




