Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 15:20
Ívan Guðjón Baldursson
Howe: Leikmenn hafa verið þreyttir
Howe hefur enn trú á evrópusæti.
Howe hefur enn trú á evrópusæti.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Eddie Howe þjálfari Newcastle svaraði spurningum eftir tap á heimavelli í nágrannaslag gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Newcastle náði forystunni eftir mistök í varnarlínu Sunderland í fyrri hálfleik en gestirnir voru sterkari aðilinn og komu til baka til að sigra leikinn með tveimur mörkum í síðari hálfleiknum.

„Ég hélt að við myndum stjórna leiknum og bæta fleiri mörkum við eftir að við náðum forystunni, en við nýttum ekki meðbyrinn. Fyrri hálfleikurinn fjaraði út og svo misstum við þetta niður í seinni hálfleik," sagði Howe.

„Mér líkaði ekki við frammistöðuna í seinni hálfleik þar sem við vorum lakara liðið á vellinum. Við gerðum alltof mikið af tæknifeilum og gáfum boltann frá okkur á slæmum stöðum. Mér finnst svoldið grimmt að við höfum tapað þessum leik miðað við hvernig hann spilaðist, en í raun þá vorum við langt frá okkar besta. Við verðum að spila mikið betur til að ná árangri á þessu gæðastigi."

Það er landsleikjagluggi framundan og á Newcastle leiki við Crystal Palace, Bournemouth og Arsenal í apríl.

„Það eru mikilvægir leikir framundan í úrvalsdeildinni og loksins fáum við tíma til að æfa fyrir leikina. Við erum ekki lengur með í neinni annari keppni svo við getum sett alla einbeitingu á úrvalsdeildina. Leikmenn hafa verið þreyttir og ég vonast til að sjá þá ferskari á lokakafla tímabilsins."

Newcastle er með 42 stig eftir 31 umferð, fjórum stigum frá baráttunni um evrópusæti.

Howe var einnig spurður út í ljótt atvik sem átti sér stað eftir lokaflautið á St. James' Park, þegar stuðningsmaður Newcastle var með kynþáttafordóma í garð Lutsharel Geertruida.

Newcastle United og Howe voru fljót að fordæma hegðun stuðningsmannsins.
Athugasemdir
banner