Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Enn tapar Espanyol - Spenna í fallbaráttunni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fyrstu fjórum leikjum dagsins er lokið í La Liga, efstu deild spænska boltans.

Þar tapaði Espanyol gegn Getafe í baráttunni um evrópusæti. Espanyol skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik en bæði voru dæmd af vegna rangstöðu eftir nánari athugun í VAR-herberginu.

Getafe refsaði með tveimur mörkum í löngum uppbótartíma fyrri hálfleiks, svo staðan var 0-2 í leikhlé. Heimamenn í Espanyol óðu í færum í seinni hálfleik en tókst aðeins að skora eitt mark, svo lokatölur urðu 1-2. Getafe er þremur stigum frá evrópusæti eftir sigurinn.

Espanyol á enn eftir að vinna leik á árinu, en liðið var í meistaradeildarbaráttu eftir magnað gengi fyrir áramót.

Á sama tíma hafði Elche betur gegn Mallorca í fallbaráttunni. Mallorca náði forystunni í síðari hálfleik en Rafa Mir og Tete Morente snéru stöðunni við.

Gestirnir frá Mallorca fengu kjörið tækifæri til að jafna í uppbótartíma, en Vedat Muriqi klúðraði af vítapunktinum. Mallorca er því í fallsæti með 28 stig eftir 29 umferðir, einu stigi á eftir Elche sem er í öruggu sæti.

Levante hafði þá betur í botnslagnum gegn Real Oviedo þar sem Carlos Espi var atkvæðamestur. Espi skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en Oviedo tókst að jafna fyrir leikhlé.

Iker Losada náði forystunni fyrir Levante í upphafi síðari hálfleiks og var hart barist í skemmtilegum slag, en ekki tókst gestunum að jafna. Þess í stað gerði Iván Romero út um viðureignina í uppbótartíma. Levante er tveimur stigum frá öruggu sæti og er Oviedo, sem þarf á kraftaverki að halda, fimm stigum þar á eftir.

Osasuna hafði að lokum betur gegn Girona í leik sem Ante Budimir skoraði eina markið á 80. mínútu. Osasuna er fjórum stigum frá evrópubaráttunni eftir sigurinn.

Espanyol 1 - 2 Getafe
0-1 Domingos Duarte ('45+3 )
0-2 Mauro Arambarri ('45+7 )
1-2 Roberto Fernandez ('68 )

Elche 2 - 1 Mallorca
0-1 Pablo Torre ('58 )
1-1 Rafa Mir ('62 )
2-1 Tete Morente ('71 )
2-1 Vedat Muriqi ('92 , Misnotað víti)

Levante 4 - 2 Oviedo
1-0 Carlos Espi ('4 )
2-0 Carlos Espi ('25 )
2-1 Ilyas Chaira ('44 )
2-2 Federico Vinas ('45+3 , víti)
3-2 Iker Losada ('52 )
4-2 Ivan Romero ('93 )

Osasuna 1 - 0 Girona
1-0 Ante Budimir ('80 )
Athugasemdir
banner