Það var tilkynnt í gær að Ernesto Valverde myndi hætta sem stjóri Athletic Bilbao eftir tímabilið.
Fljótlega eftir að það var tilkynnt þá voru sögusagnir á kreik um að Andoni Iraola væri efstur á listanum í Baskalandi.
Fljótlega eftir að það var tilkynnt þá voru sögusagnir á kreik um að Andoni Iraola væri efstur á listanum í Baskalandi.
Hinn 43 ára gamli Iraola þekkir mjög vel til hjá Bilbao en er uppalinn hjá félaginu og spilaði hann yfir 400 leiki fyrir félagið sem leikmaður.
Iraola hefur verið að vinna frábært starf með Bournemouth á Englandi síðustu árin en hann verður samningslaus eftir tímabilið.
Bournemouth vonast til að fá svör frá Iraola á næstu dögum um hvar framtíð hans liggur en hann hefur einnig verið orðaður við Crystal Palace og Tottenham.
Athugasemdir




