Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. mars 2026 09:56
Elvar Geir Magnússon
Kepa ver mark Arsenal í úrslitaleiknum
Kepa Arrizabalaga.
Kepa Arrizabalaga.
Mynd: EPA
Kepa Arrizabalaga verður í byrjunarliði Arsenal gegn Manchester City í úrslitaleiknum í deildabikarnum sem verður klukkan 16:30 á Wembley í dag.

Á fréttamannafundi á föstudag vildi Mikel Arteta ekki gefa neitt upp um hver yrði í markinu í leiknum en The Athletic fullyrðir að það verði Kepa.

Arsenal getur unnið sinn fyrsta stóra titil síðan 2020.

David Raya er aðalmarkvörður Arsenal en Kepa hefur spilað alla bikarleikina og þessi fyrrum markvörður Chelsea mun verða í markinu á Wembley.

Bæði liðin verða því með varamarkverði í leiknum en James Trafford verður í marki City.
Athugasemdir