Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Meistarasigur hjá Barcelona
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Barcelona 1 - 0 Rayo Vallecano
1-0 Ronald Araujo ('24)

Spánarmeistarar Barcelona tóku á móti Rayo Vallecano í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum og úr varð furðu jafn slagur.

Fyrri hálfleikurinn var skemmtilegur þar sem Barcelona stjórnaði ferðinni en gestirnir í liði Vallecano voru stórhættulegir í sínum fáu sóknaraðgerðum.

Ronald Araújo skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Joao Cancelo á 24. mínútu og hélt Barcelona forystunni.

Síðari hálfleikurinn var bragðdaufari en á lokakaflanum fengu gestirnir nokkur góð færi til að jafna sem fóru forgörðum.

Niðurstaðan varð því 1-0 sigur Barcelona þrátt fyrir að hafa ekki sýnt sérstaklega góða frammistöðu. Svokallaður meistarasigur, en liðið er núna með sjö stiga forystu á Real Madrid sem á leik til góða gegn Atlético í kvöld.

Vallecano sýndi frábæra frammistöðu í tapinu og er liðið með 32 stig eftir 29 umferðir, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Það er landsleikjagluggi framundan og á Barcelona þrjá leiki við Atlético Madrid á ellefu dögum í fyrrihluta apríl.

Börsungar heimsækja Atlético í La Liga 4. apríl og taka svo á móti þeim í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fjórum dögum síðar. Seinni leikurinn í Meistaradeildinni fer svo fram í Madríd 14. apríl.
Athugasemdir
banner
banner