Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
banner
   sun 22. mars 2026 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Slæm mistök hjá Kepa og O'Reilly að ganga frá Arsenal
Mynd: EPA
Manchester City er komið með forystuna gegn Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins sem fram fer á Wembley.

Það var umdeilt atvik eftir aðeins fimm mínútna leik í seinni hálfleik þegar Peter Banks dómari gaf Kepa Arrizabalaga gult spjald fyrir brot á Jeremy Doku. Sjáðu atvikið hér

Pep Guardiola var ekki sáttur með ákvörðunina þar sem Banks stöðvaði leikinn þegar Doku var með vald á boltanum í góðri stöðu.

Tíu mínútum síðar komst City yfir eftir skelfileg mistök Kepa. Rayan Cherki átti fyrirgjöf og Kepa náði ekki að grípa boltann sem barst til Nico O'Reilly sem skoraði örugglega.

Stuttu síðar skoraði O'Reilly sitt annað mark þeegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Matheus Nunes.

Sjáðu fyrra markið hér

Sjáðu seinna markið hér

Athugasemdir
banner
banner
banner