Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Toppliðin mætast í úrslitaleik
Gífurleg spenna í fallbaráttunni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru þrír leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag áður en Arsenal og Manchester City takast á í úrslitaleik deildabikarsins.

Newcastle United mætir Sunderland í nágrannaslag í hádegisleiknum og þurfa lærlingar Eddie Howe á sigri að halda til að blanda sér í baráttuna um evrópusæti.

Tottenham spilar svo við Nottingham Forest í eftirvæntum fallbaráttuslag þar sem aðeins eitt stig skilur að á milli liðanna.

Aston Villa er búið að tapa þremur leikjum í röð og fær kjörið tækifæri til að laga stöðu sína í meistaradeildarbaráttunni þegar fallbaráttulið West Ham kíkir í heimsókn.

Það er mögnuð spenna í úrvalsdeildinni en stórleikur dagsins er úrslitaleikur deildabikarsins. Hvorki Arsenal né Man City hafa komist í úrslitaleikinn síðan 2021, þegar City vann keppnina fjórða árið í röð.

Þetta er í annað sinn sem liðin mætast í úrslitaleiknum eftir að City hafði betur 2018. City hefur unnið keppnina átta sinnum frá upphafi en Arsenal aðeins tvisvar.

Til gamans má geta að þetta verður í fyrsta sinn í sögu deildabikarsins sem toppliðin tvö úr ensku úrvalsdeildinni mætast í úrslitaleiknum.

Þetta er í annað sinn sem Arsenal og City mætast á tímabilinu eftir 1-1 jafntefli á Emirates leikvanginum í september.

Premier League
12:00 Newcastle - Sunderland
14:15 Tottenham - Nott. Forest
14:15 Aston Villa - West Ham

League Cup
16:30 Arsenal - Man City
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner
banner