Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 19:06
Ívan Guðjón Baldursson
Bose-bikarinn: Íslandsmeistararnir unnu í Garðabæ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
1-0 Örvar Eggertsson ('22)
1-1 Óskar Borgþórsson ('36)
1-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('56)
1-3 Gylfi Þór Sigurðsson ('77)

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  3 Víkingur R.

Íslandsmeistarar Víkings R. unnu Bose bikarinn með sigri gegn Stjörnunni í Garðabæ í dag.

Leikurinn átti að fara fram á Samsungvellinum en var færður yfir í Miðgarð vegna veðurs.

Heimamenn byrjuðu betur og náðu forystunni eftir laglega sókn þar sem Emil Atlason fékk sendingu innfyrir vörnina og lagði boltann fyrir Örvar Eggertsson sem skoraði af stuttu færi.

Víkingar vöknuðu til lífsins við að lenda undir og áttu tvö stórhættuleg marktækifæri áður en Óskar Borgþórsson jafnaði af mikilli yfirvegun eftir góða fyrirgjöf frá Stíg Diljani Þórðarsyni.

Staðan var jöfn 1-1 í hálfleik og voru Víkingar sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum. Valdimar Þór Ingimundarson náði forystunni fyrir gestina með áhugaverðri afgreiðslu eftir góða sendingu frá Helga Guðjónssyni og innsiglaði Gylfi Þór Sigurðsson að lokum sigurinn með skoti úr D-boganum.

Gylfi fékk alltof mikinn tíma til að athafna sig á sínum uppáhaldsstað á vellinum.

Stjarnan átti marktilraun í slá og varði Árni Snær Ólafsson stórkostlega frá Valdimar Þór en meira var ekki skorað, svo lokatölur urðu 1-3.

Það vekur athygli að meistaraflokkur Víkings lagði FH einnig að velli í æfingaleik í dag.

   21.03.2026 14:53
Víkingur spilar tvo leiki í dag - Burstuðu FH

Athugasemdir
banner