Fabian Hürzeler var mjög ánægður eftir sigur Brighton á heimavelli gegn Englandsmeisturum Liverpool í dag.
Staðan var jöfn 1-1 eftir fyrri hálfleik og tóku heimamenn í Brighton öll völd á vellinum eftir leikhléð.
Danny Welbeck skoraði bæði mörk Brighton í 2-1 sigri sem hefði getað verið stærri.
„Þetta var frábær frammistaða og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Strákarnir spiluðu frábæran fótbolta, sköpuðu mikið af færum og vörðust líka mjög vel. Ég gæti varla verið ánægðari. Ég verð líka að hrósa stuðningsmönnum, orkan frá þeim var frábær og hjálpaði okkur til dáða," sagði Hurzeler eftir lokaflautið. „Þetta er það sem við viljum skapa hérna, við viljum skapa alvöru virki þar sem ekkert lið vill koma til að spila."
Brighton er um miðja úrvalsdeild með 43 stig þökk sé fjórum sigrum í síðustu fimm leikjum.
„Það er ekki mikið sem hefur breyst hjá okkur, við erum bara byrjaðir að stjórna lykilaugnablikum leiksins betur. Við erum alltaf með sama leikstíl og ég er ánægður að sjá afraksturinn í dag. Þetta var mjög ánægjulegur sigur."
Hürzeler hrósaði Danny Welbeck og James Milner í hástert og ræddi um evrópuvonir Brighton, þar sem liðið er aðeins þremur stigum frá evrópubaráttunni.
„Welbeck var frábær í dag og hann er svo mikilvægur fyrir okkur, þetta er ótrúlegur leikmaður. Við erum í góðri stöðu í deildinni og núna snýst þetta um að halda auðmýkt og hugsa um einn leik í einu. Við verðum að mæta í hvern einasta leik eins og það sé úrslitaleikur. Svo sjáum við til hvar við endum eftir lokakaflann."
Athugasemdir




