Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Magnaður endurkomusigur í Dortmund
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Dortmund 3 - 2 Hamburger
0-1 Philip Otele ('19 )
0-2 Albert-Mboyo Sambi Lokonga ('38 )
0-2 Felix Nmecha ('45 , Misnotað víti)
1-2 Ramy Bensebaini ('73 , víti)
2-2 Serhou Guirassy ('78 )
3-2 Ramy Bensebaini ('84 , víti)

Borussia Dortmund tók á móti nýliðum Hamburger SV í lokaleik dagsins í efstu deild í Þýskalandi og komust gestirnir í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.

Philip Otele skoraði fyrsta markið af stuttu færi eftir herfileg mistök hjá Daniel Svensson sem missti boltann sem aftasti varnarmaður og tvöfaldaði Albert Sambi Lokonga, fyrrum leikmaður Arsenal, forystuna á 38. mínútu. Lokonga skoraði af auðveldu færi eftir að varnarmenn Dortmund skildu hann aleinan eftir í vítateignum.

Felix Nmecha fékk kjörið tækifæri til að minnka muninn fyrir heimamenn undir lok fyrri hálfleiks en hann klúðraði af vítapunktinum.

Heimamenn gerðu tvöfalda skiptingu í hálfleik sem átti eftir að skipta sköpum. Þeir voru við fullkomna stjórn en tókst ekki að setja boltann í netið fyrr en á 73. mínútu þegar Ramy Bensebaini, sem hafði komið inn af bekknum í hálfleik, skoraði úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot innan teigs.

Fimm mínútum síðar tókst Serhou Guirassy, sem kom einnig inn af bekknum í leikhlénu, að jafna metin með skalla eftir fyrirgjöf.

Áfram sóttu heimamenn og tókst þeim að gera sigurmark á 84. mínútu, þegar þeir fengu þriðju vítaspyrnu leiksins dæmda sér í hag. Í þetta skiptið var flautað á hendi og aftur skoraði Bensebaini af vítapunktinum.

Lokatölur urðu 3-2 eftir þessa mögnuðu endurkomu en heimamenn hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk í seinni hálfleiknum.

Dortmund er í öðru sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Bayern þegar sjö umferðir eru eftir af tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner