Íslandsmeistarar Víkings R. mættu til leiks í tvo mismunandi leiki í gær gegn erfiðum andstæðingum og unnu þá báða.
Víkingar eru með magnaðan leikmannahóp, þann sterkasta og breiðasta sem sést hefur í sögu íslenska boltans, og eru ekki að glíma við mikil meiðslavandræði á undirbúningstímabilinu.
Þeir gátu því hæglega stillt upp í tvö geysisterk byrjunarlið þegar þeir spiluðu annars vegar æfingaleik við FH og hins vegar úrslitaleik Bose bikarsins gegn Stjörnunni.
Víkingar gerðu sér lítið fyrir og unnu fyrst 3-0 gegn FH áður en þeir lögðu Stjörnuna að velli 3-1.
Leikirnir voru sýndir beint á Livey og er hægt að horfa á þá í heild sinni hér fyrir neðan.
21.03.2026 14:53
Víkingur spilar tvo leiki í dag - Burstuðu FH
Víkingur - FH (12:45) - æfingaleikur
Stjarnan - Víkingur (17:00) - Úrslitaleikur Bose bikarsins
Athugasemdir





