Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ekki ásættanlegt og það er mikilvægt að tilkynna þetta"
Mynd: EPA
Sunderland lagði Newcastle í grannaslag í úrvalsdeildinni í dag. Brian Brobbey skoraði sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma. Sunderland komst upp fyrir Newcastle í 11. sæti með sigrinum en eitt stig skilur liðin að.

Það kom upp leiðindar atvik í lokin en Lutsharel Geertruida sakar stuðningsmann um kynþáttafordóma.

„Við töluðum aðeins saman fyrir blaðamannafundinn, hann virðist í lagi. Þetta er ekki ásættanlegt og það er mikilvægt að tilkynna þetta og takast á við aðstæðurnar á réttan hátt,“ sagði Regis Le Bris, stjóri Sunderland.

„Afstaða okkar er skýr - við látum ekki mismunun af neinu tagi viðgangast. Við munum vinna með yfirvöldum að því að rannsaka málið til fulls og tryggja að allir einstaklingar séu greindir og dregnir til ábyrgðar," segir í yfirlýsingu frá Newcastle.


Athugasemdir
banner