Íslenska landsliðið mætir Kanada þann 28. mars og Haíti þann 31. mars í æfingaleikjum en báðir leikir fara fram á Canda BMO Field leikvanginum í Ontario, Kanada.
Daníel Leó Grétarsson var valinn í hópinn en hann þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla þegar Sonderjyske tapaði 2-0 gegn Nordsjælland í dönsku deildinni í dag.
Daníel Leó Grétarsson var valinn í hópinn en hann þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla þegar Sonderjyske tapaði 2-0 gegn Nordsjælland í dönsku deildinni í dag.
Ekki er vitað að svo stöddu hvers eðlis meiðslin eru en hann gæti átt það á hættu að missa af landsleikjunum.
Ef hann missir af leikjunum er líklegt að Hjörtur Hermannsson, leikmaður Volos í Grikklandi, taki sæti hans. Daníel er þrítugur varnarmaður en hann hefur spilað 29 landsleiki. Hjörtur er 31 árs gamall varnarmaður og hefur spilað 28 landsleiki og skorað eitt mark.
Athugasemdir


